1. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
1. júní er 152. dagur ársins (153. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 213 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 193 - Marcus Didius var myrtur í höll sinni.
- 1495 - Förumunkurinn John Cor skráði hjá sér fyrstu uppskriftina að skosku viskíi.
- 1815 - Napoleon Bonaparte sór eið að stjórnarskrá Frakklands.
- 1831 - James Clark Ross upppgötvaði segulnorður á Boothia-skaga.
- 1855 - Bandaríkjamaðurinn William Walker lagði Níkaragúa undir sig og tók upp þrælahald á ný.
- 1908 - Fræðslulögin frá 1907 gengu í gildi og hófst þá skólaskylda 10 - 14 ára barna.
- 1908 - Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi.
- 1910 - Robert Falcon Scott lagði af stað í ferð sína á Suður-Pólinn.
- 1935 - Raftækjaeinkasala ríkisins tók til starfa og hafði einokun á öllum raftækjum.
- 1935 - Bílprófið er tekið upp á Bretlandi.
- 1943 - Vegna skorts á gúmmíi var fyriskipuð skömmtun á gúmmístígvélum í stærðum 7 og þar yfir.
- 1968 - Nýja sundlaugin í Laugardal í Reykjavík tók til starfa og var þá gömlu sundlaugunum lokað.
- 1976 - Bretar viðurkenndu 200 mílna fiskveiðilögsögu við Ísland.
- 1979 - Í Ródesíu komst fyrsta ríkisstjórn þeldökkra í 90 ár til valda og breytti stjórnin nafni landsins í Zimbabwe.
- 1983 - Met mældist í verðbólgu, er framfærsluvísitalan hækkaði um 25,1% á þremur mánuðum og hækkun lánskjaravísitölu á ársgrundvelli varð 158,9%.
- 1990 - George H. W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogi Sovétríkjanna, skrifuðu undir samkomulag um að hætta framleiðslu á efnavopnum. Um leið hófu ríkin að eyða birgðum sínum.
- 2003 - Kínverjar byrjuðu að fylla í uppistöðulónið við þriggjagljúfrastífluna. Við þetta hækkar vatnsborðið um allt að 100 metra.
- 2005 - Hollendingar samþykktu ekki stjórnarskrá Evrópusambandsins.
[breyta] Fædd
- 1926 - Marilyn Monroe, bandarísk leikkona (d. 1962).
- 1930 - Edward Woodward, enskur leikari.
- 1934 - Pat Boone, bandarískur söngvari.
- 1937 - Morgan Freeman, bandarískur leikari.
- 1947 - Ron Wood, enskur gítarleikari, (Jeff Beck Group, The Faces, og The Rolling Stones).
- 1960 - Simon Gallup, enskur bassaleikari (The Cure).
- 1965 - Nigel Short, enskur skákmaður.
- 1965 - Larisa Lazutina, rússnesk skíðagöngukona.
- 1973 - Heidi Klum, þýsk fyrirsæta.
- 1974 - Alanis Morissette, kanadísk söngkona og lagahöfundur.
[breyta] Dáin
- 1868 - James Buchanan, 15. forseti Bandaríkjanna (f. 1791).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |