Gregoríska tímatalið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gregoríska tímatalið (stundum kallað gregoríanska tímatalið eða nýi stíll) er tímatal sem innleitt var af Gregoríusi páfa 13. árið 1582. Mismunandi var samt hvenær aðrar þjóðir tóku það upp. Tímatalið tók við af því júlíska þar sem mikil skekkja var í því. Leiðréttingin gekk út á það að felldir voru niður 10 dagar árið sem það var tekið í notkun og að eingöngu fjórða hvert aldamótaár (þau aldamótaár sem talan 400 gekk upp í) varð hlaupár í stað allra áður.