Föstudagur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Föstudagur er 6. dagur vikunnar. Dagurinn er á eftir fimmtudegi en á undan laugardegi. Nafnið er dregið af því, að þennan dag skyldi fólk fasta á kjöt. Dagurinn er seinasti almenni vinnudagur vikunnar. Til forna var dagurinn kenndur við Frey og hét Freysdagur. Það nafn sést enn þá í dönsku, ensku og þýsku: Fredag, Friday og Freitag.
Mannætan í sögu Daniels Defoe um Róbinson Krúsó hét Friday, sem var íslenskað sem Frjádagur.
Vika |
Sunnudagur | Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur |