24. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
24. júní er 175. dagur ársins (176. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 190 dagar eru eftir af árinu. 24. júní er líka Jónsmessudagur, og heitir svo því það er afmælisdagur Jóhannesar skírara. Eini fæðingardagur dýrlings sem haldinn var helgur.
[breyta] Atburðir
- 1000 - Kristni lögtekin á Alþingi.
- 1128 - Portúgal varð sjálfstætt ríki eftir orrustuna við São Mamede.
- 1497 - John Cabot kom að landi í Norður-Ameríku.
- 1535 - Uppreisnin í Münster: Anabaptistaborgin Münster féll.
- 1556 - Oddur Gottskálksson, lögmaður, lést. Hann þýddi Nýja testamentið á íslensku fyrstur manna og var það fyrsta bók sem prentuð var á íslensku. Oddur var sonur Gottskálks biskups grimma á Hólum.
- 1724 - Appolónía Schwarzkopf lést á Bessastöðum. Hún var heitkona Fuhrmanns amtmanns, en hann vildi ekkert með hana hafa.
- 1865 - Fyrsti keisaraskurður á Íslandi. Móðirin lést en barnið lifði. Þetta var fyrsta svæfing á Íslandi við fæðingu.
- 1875 - W. L. Watts, enskur vísindamaður, fór ásamt fjórum Íslendingum norður yfir Vatnajökul og komu þeir til byggða á Hólsfjöllum eftir mikla hrakninga í rúman hálfan mánuð.
- 1886 - Stórstúka Íslands stofnuð.
- 1900 - 900 ára afmælis kristnitökunnar á Íslandi var minnst við messur í landinu.
- 1956 - Hræðslubandalag Framsóknarflokks og Alþýðuflokks bauð fram í Alþingiskosningum.
- 1961 - Sigurhæðir, hús Matthíasar Jochumssonar, var opnað sem safn í minningu skáldsins.
- 1968 - Atlantshafsbandalagið hélt ráðherrafund á Íslandi í fyrsta sinn.
[breyta] Fædd
- 1842 - Ambrose Bierce, Bandarískur háðsdeiluhöfundur, gagnrýnandi, skáld, smásöguhöfundur, ritstjóri og blaðamaður.
[breyta] Dáin
- 1556 - Oddur Gottskálksson, lögmaður.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |