17. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
17. júní er 168. dagur ársins (169. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 197 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1881 - Þorlákur O. Johnson, sem lagt hafði stund á verslunarnám í Englandi, opnaði verslun í Reykjavík.
- 1886 - Haldið var upp á afmæli Jóns Sigurðssonar í fyrsta sinn opinberlega í kaffihúsinu í Lækjargötu 4 í Reykjavík.
- 1900 - Fyrsta póstferð með farþega, vörur og póst, farin á fjórhjóla hestvagni frá Reykjavík og austur fyrir fjall.
- 1907 - Stúdentafélagið gekkst fyrir því að víða var flaggað íslenskum fána, bláum með hvítum krossi. Þessum fána var flaggað víða um land og voru 65 fánar við hún í Reykjavík.
- 1911 - Háskóli Íslands stofnaður og settur í fyrsta sinn. Tók hann yfir rekstur Prestaskólans, Læknaskólans og Lagaskólans, sem um leið voru lagðir niður.
- 1911 - Fyrsta landsmót Ungmennafélags Íslands hófst á Melavellinum í Reykjavík og stóð í viku.
- 1915 - Fyrsta bílpróf tekið í Reykjavík. Handhafi skírteinis númer 1 var Hafliði Hjartarson trésmiður, 28 ára gamall.
- 1917 - Nokkur félagasamtök héldu samsæti í Reykjavík til heiðurs Stephani G. Stephanssyni skáldi, sem staddur var á Íslandi í fyrsta sinn frá því að hann kvaddi landið tvítugur að aldri.
- 1918 - Loftskeytastöðin á Melunum í Reykjavík var tekin í notkun í samvinnu við Marconi-félagið í London.
- 1925 - Á Ísafirði var tekið í notkun nýtt sjúkrahús, sem talið var hið fullkomnasta á Íslandi.
- 1926 - Björg Þorláksdóttir Blöndal varð fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi er hún varði doktorsritgerð sína við Sorbonne-háskóla í París. Maður hennar var Sigfús Blöndal orðabókarhöfundur.
- 1926 - Melavöllurinn í Reykjavík vígður eftir flutning.
- 1940 - Bygging Háskóla Íslands við Suðurgötu í Reykjavík var vígð.
- 1940 - Þrír bátar komu frá Noregi til Austfjarða með 59 norska flóttamenn um borð. Mánuði fyrr höfðu 26 norskir flóttamenn komið til Akureyrar.
- 1941 - Sveinn Björnsson var kjörinn ríkisstjóri Íslands af Alþingi, en hann hafði verið sendiherra landsins í Kaupmannahöfn í tvo áratugi.
- 1944 - Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum og jafnframt var fyrsta stjórnarskrá lýðveldisins staðfest. Einnig var Sveinn Björnsson ríkisstjóri kjörinn fyrsti forseti lýðveldisins. Síðan þá hefur dagurinn verið þjóðhátíðardagur Íslands.
- 1945 - Verslunarskóli Íslands brautskráði stúdenta í fyrsta sinn og voru þeir 7 talsins.
- 1945 - Afhjúpaður var minningarskjöldur á húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn.
- 1947 - Fyrsta millilandaflugvél í íslenskri eigu kom til landsins í fyrsta skipti. Var það Skymaster flugvélin Hekla í eigu Loftleiða hf.
- 1954 - Morgunblaðið birti ljóðið Ísland er land þitt eftir Margréti Jónsdóttur í tilefni af 10 ára afmæli lýðveldisins. Ljóðið varð þekkt þegar Magnús Þór Sigmundsson gerði lag við það og gaf út á plötu árið 1982.
- 1959 - Íþróttavöllurinn í Laugardal var formlega vígður, en hann hafði þá verið í notkun í tvö ár.
- 1959 - Nærri lá að slys yrði er varnargarður brast á virkjunarsvæðinu við Sog. Menn sluppu naumlega.
- 1961 - 150 ára afmælis Jóns Sigurðssonar víða minnst, meðal annars með hátíð á fæðingarstað hans, Hrafnseyri við Arnarfjörð.
- 1969 - Aldarfjórðungsafmæli lýðveldisins var fagnað í mikilli rigningu.
- 1974 - Á Kirkjubæjarklaustri var vígð kapella til minningar um Jón Steingrímsson eldklerk.
- 1977 - Höggmyndin Alda aldanna eftir Einar Jónsson myndhöggvara frá Galtafelli í Hrunamannahreppi afhjúpuð á Flúðum.
- 1980 - Ísbjarnarblús, fyrsta plata Bubba Morthens, kom út.
- 1982 - Þriðja skipið með nafninu Akraborg kom til landsins og sigldi á milli Reykjavíkur og Akraness.
- 1985 - Í Vestmannaeyjum var afhjúpuð höggmynd til minningar um Tyrkja-Guddu (Guðríði Símonardóttur). Guðríður mun aldrei hafa komið til Eyja eftir að henni var rænt þaðan.
- 1991 - Víkingaskipið Gaia kom frá Noregi til Reykjavíkur og hafði verið á siglingu frá 17 maí.
- 1994 - 50 ára afmæli Lýðveldisins Íslands fagnað á Þingvöllum.
- 1994 - Jóhanna Sigurðardóttir lagði grunninn að stjórnmálaflokknum Þjóðvaka með orðunum „minn tími mun koma“.
- 2006 - Íslenska landsliðið í handbolta vann sér þátttökurétt á HM í Þýskalandi 2007 með því að sigra Svía í Laugardalshöllinni með samanlagt þriggja marka mun.
[breyta] Fædd
- 1811 - Jón Sigurðsson, „sómi Íslands, sverð þess og skjöldur“, fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hann dó 7. desember 1879.
[breyta] Dáin
- 1779 - Jón Ólafsson, Grunnavíkur-Jón, um 74 ára. Hann var skrifari Árna Magnússonar prófessors í Kaupmannahöfn og ritaði um fjölbreytt efni, svo sem fornkvæðaskýringar, málfræði og bókmenntasögu.
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |