20. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
20. júní er 171. dagur ársins (172. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 194 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1627 - Tyrkir rændu í Grindavík. Þaðan fóru þeir víða um sunnanvert landið og rændu fólki. Ránið stóð til 19.júlí.
- 1750 - Bjarni Pálsson og Eggert Ólafsson gengu fyrstir manna svo vitað sé á Heklutind. Þar fundu þeir hvorki dyr Vítis né flögrandi illfygli yfir gígum, sem þjóðtrúin hélt fram að væru þar.
- 1890 - Þúsund ár voru liðin frá landnámi Eyjafjarðar og var þess minnst með héraðshátíð á Oddeyri.
- 1904 - Bílaöld hófst á Íslandi er fyrsti bíllinn kom til landsins. Bíllinn var gamall og slæmt eintak af gerðinni Cudel og gerði ekki mikla lukku.
- 1923 - Samþykkt voru lög um skemmtanaskatt, sem renna skyldi í sjóð til byggingar Þjóðleikhúss. Framkvæmdir hófust 5 árum síðar og var húsið loks vígt 1950.
- 1936 - Kristján X konungur Íslands og Danmerkur lagði hornstein að virkjunarhúsinu við Ljósafoss. Ljósafossvirkjun var tekin í notkun í október rúmu ári síðar.
- 1954 - Ásmundur Guðmundsson var vígður biskup yfir Íslandi og gegndi hann þeirri stöðu í 5 ár.
- 1969 - Slippstöðin á Akureyri sjósetti strandferðaskipið Heklu, sem var stærsta skip sem smíðað hafði verið á Íslandi, 950 tonn.
- 1970 - Listahátíð í Reykjavík var sett í fyrsta sinn. Margir listamenn komu fram, meðal þeirra voru hljómsveitin Led Zeppelin og Daniel Barenboim.
- 1980 - Heimssöngvarinn Luciano Pavarotti söng í Laugardalshöll á vegum Listahátíðar í Reykjavík. Hlaut hann góðar viðtökur.
[breyta] Fædd
[breyta] Dáin
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |