Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Efnavopn - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Efnavopn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Efnavopn eru þau vopn nefnd sem viljandi hagnýta í hernaði skaðlega verkun efnasambands á lífverur.

Hugtakið er illa skilgreint og hefur margar merkingar. Í Genfarsáttmálanum frá 1925 eru efnavopn skilgreind sem þær gastegundir sem valda köfnun eða eitrun og aðrar gastegundir sem notaðar eru í hernaði ásamt vökvum, öðrum efnum og búnaði sem er notaður í þeim tilgangi. Í íslenskum lögum eru efnavopn skilgreind sem eiturefni og forstigsefni þeirra, nema þau séu ekki ætluð til hernaðarlegra nota sem og skotfæri og tæki sem sérstaklega eru gerð til að valda bana eða öðrum skaða með eituráhrifum eiturefna og að lokum hvern þann búnað sem sérstaklega er gerður til að nota við beitingu slíkra skotfæra og tækja. Til dæmis er af þessum skilgreiningum báðum óljóst hvort eigi að telja til efnavopn þau vopn sem ætluð eru að valda dýrum eða plöntum skaða með eituráhrif tiltekinna efnasambanda á þær lífverur og um það er deilt, hvort slíkt eigi að gera. Í þessarri grein er stuðst við tiltölulega víða skilgreiningu á því, hvað séu efnavopn.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga notkunar efnavopna

Það að eitra vatnsból andstæðinga manns og slíkar aðgerðir gætu hæglega flokkast undir notkun efnavopn og slíkar frumstæðar aðfarir við efnahernað hafa tíðkast frá örófi alda. Sömuleiðis hefur það lengi verið stundað, að bera eitur á örvar, spjót, byssukúlur og annað til að gera viðkomandi vopn banvænni. Meiriháttar notkun efnavopna á kerfisbundinn hátt var hinsvegar fyrst reynd í fyrri heimsstyrjöldinni og hafa þau aldrei síðan verið notuð á slíkum skala. Þar var efnavopnum beitt mikið af báðum stríðandi fylkingum

[breyta] Efnavopn í fyrri heimsstyrjöld

Fyrstir til að beita efnavopnum í því stríði voru Frakkar, sem strax í upphafi stríðs beittu Xylylbrómíði, táragasi, gegn Þjóðverjum. Þjóðverjar beittu efnavopnum fyrstu af ráði í annarri orrustunni um Ypres, en það var líka í fyrsta skipti sem Klórgasi var beitt í hernaði í stórum stíl. Þjóðverjar notuðu að því sinni þá frumstæðu aðferð að opna tanka af klóri þegar vindátt var hagstæð og láta gasið færast með vindinum yfir einskismannsland að skotgröfum andstæðinganna. Klórgas er þyngra en loft og færðist meðfram jörðinni og settist að í dældum í landslaginu, þar á meðal í skotgröfum. Bretar beittu efnavopnum í stórum stíl fyrst í orrustunni um Loos-en-Gohelle 1915, þá klórgasi. Meðal þekktustu annarra efnasambanda sem voru notuð í fyrri heimsstyrjöldinni voru fosgen og hið svokallaða sinnepsgas. Efnavopn voru þróuð og notuð af báðum fylkingum á vesturvígstöðvunum allt fram að stríðslokum.

[breyta] Millistríðsárin

Þó að almenningsálitið í mörgum löndum væri mjög andsnúið notkun efnavopna eftir fyrri heimsstyrjöldina var slíkum vopnum víða beitt á árunum rétt eftir stríð. Bretar beittu þeim í rússnesku borgarastyrjöldinni og gegn uppreisnarmönnum í Írak, sem þá var nýlenda Breta. Sömuleiðis beittu Spánverjar þeim gegn uppreisnarmönnum í Marokkó, sem á þeim tíma tilheyrði Spáni. Árið 1925 komu flestar vestrænar þjóðir sér saman um að banna notkun efnavopna eftir reynslu fyrri heimsstyrjaldarinnar. Almenningsálitið víða um lönd hafði mikið að segja um að knýja ríkisstjórnir margra landa til að sætta sig við þetta.

[breyta] Efnavopn í seinni heimssturjöld

Í seinni heimsstyrjöldinni stóðu flest ríki við skuldbindingar sínar frá 1925 um að beita ekki efnavopnum. Í Evrópu var þeim ekki beitt af ráði en Japanir beittu þeim lítilsháttar gegn Kínverjum. Við innrás Þjóðverja í Pólland 1939 nefndi Hitler í frægri ræðu sinni, þar sem hann kunngjörði að stríð væri skollið á milli Þjóðverja og Pólverja, að ef Pólverjar myndi beita efnavopnum yrði þeim svarað í sömu mynt. Segja má að það hafi slegið tóninn fyrir stríðið hvað efnavopn varðar, því öll stórveldin stóðu fyrir mikilli framleiðslu efnavopna á stríðsárunum, til þess að geta svarað fyrir sig ef á þau yrði ráðist með efnavopnum en ekkert þeirra beitti þeim af ráði.

[breyta] Eftir seinni heimsstyrjöldina

Eftir seinni heimstyrjöldina hefur efnavopnum oft verið beitt. Egyptar munu hafa beitt þeim í Jemen. Badaríkjamenn stunduðu í Víetnamstríðinu umfangsmiklar árásir á Norður-Víetnam til að drepa trén í skógum landsins og hrísgrjónaplöntur á ökrum til að eyða því skjóli, sem skæruliðar höfðu í skógunum og til að skera undan matvælaframleiðslu landsins til að knýja það til uppgjafar. Helsta efnið sem var notað var 2,4,5-tríklóró-fenoxyediksýrubútylester, hið svokallaða Agent Orange. En það er mjög umdeilt hvort slík vopn sem beinast gegn plöntum teljist til efnavopna. Í Íran-Írakstríðinu beittu Írakar óumdeildum efnavopnum í meira mæli en tíðkast hefur síðan í fyrri heimsttyrjöldinni. Sérstaklega þekkt er árás íraska hersins á kúrdíska þorpið Halabdscha 1988.

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com