Loðvík 14.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
|
||||
|
||||
|
||||
Ríkisár | 1643 - 1715 | |||
Skírnarnafn | Louis-Dieudonné | |||
Fædd(ur) | 5. september, 1638 | |||
Saint-Germain-en-Laye, Frakklandi | ||||
Dáin(n) | 1. september, 1715 | |||
Versalahöll, Frakklandi | ||||
Gröf | Saint-Denis-kirkja, París | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Loðvík 13. | |||
Móðir | Anna frá Austurríki | |||
Drottning | María Teresa Spánarprinsessa | |||
Börn |
|
Loðvík 14. (5. september 1638 – 1. september 1715) var konungur Frakklands og Navarra frá 14. maí 1643 þar til hann lést, eða frá fjögurra ára aldri þar til hann var nærri sjötíu og sjö ára gamall. Hann ríkti því í sjötíu og tvö ár, lengur en nokkur annar franskur konungur eða nokkur annar af helstu einvöldum í Evrópu. Hann tók þó ekki persónulega við valdataumunum þar til eftir lát forsætisráðherra síns (premier ministre), Mazarins kardinála árið 1661. Hann var þekktur sem „sólkonungurinn“ (Le Roi Soleil) (sagt var að sólin snerist um hann), „Loðvík hinn mikli“ (Louis le Grand) eða sem „hinn mikli einvaldur“ (Le Grand Monarque). Hann er einnig þekktur fyrir að eiga að hafa sagt „Ríkið, það er ég“ („L'État, c'est moi“) en þó er það ekki staðfest með heimildum heldur frekar til merkis um alræði stjórnunarhátta hans og ríkulegt sjálfsálit.
Fyrirrennari: Loðvík 13. |
|
Eftirmaður: Loðvík 15. |