Spánn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fáni Spánar | Skjaldarmerki Spánar |
Kjörorð ríkisins: Plus Ultra | |
Opinber tungumál | Spænska (kastillíska) (katalónska, baskneska og galisíska eru einnig opinber tungumál í sumum héruðum.) |
Höfuðborg | Madrid |
Konungur | Jóhann Karl I |
Forsætisráðherra | Jose Luis Rodríguez Zapatero |
Flatarmál - Samtals - % vatn |
50. sæti 504.782 km² 1.04% |
Fólksfjöldi - Samtals (2004) - Þéttleiki byggðar |
29. sæti 43.197.684 85/km² |
Gjaldmiðill | Evra (€) |
Tímabelti | UTC+1 (UTC+2 á sumrin) |
Þjóðsöngur | Marcha Real |
Þjóðarlén | .es |
Landsnúmer | 34 |
Spánn er konungsríki á Íberíuskaga í Suðvestur-Evrópu. Lönd sem liggja að Spáni eru Portúgal að vestan og Frakkland að austan. Auk þess er örríkið Andorra í Pýreneafjöllum á landamærum Spánar og Frakklands. Syðst á Spáni er svo Gíbraltar, sem er lítið landsvæði undir yfirráðum Breta. Að norðan liggur Biskajaflói að Spáni, Atlantshafið að suðvestan og að sunnan er Gíbraltarsund og svo Miðjarðarhafið að suðaustan og austan. Syðsti oddi Spánar er jafnframt syðsti oddi meginlands Evrópu. Þar er smábær sem heitir Tarifa. Hann er á nákvæmlega 36°N. Hið opinbera heiti landsins er Reino de España. Spáni tilheyra Baleareyjar í Miðjarðarhafi (Majorka, Menorka og Íbísa), Kanaríeyjar í Atlantshafi og útlendurnar Ceuta og Melilla í Norður-Afríku. Landið er rúmlega 500.000 ferkílómetrar að flatarmáli, eða um það bil fimm sinnum stærra en Ísland. Á Spáni búa um 43 milljónir manna.
Stærstu borgir Spánar eru höfuðborgin, Madríd og Barselóna. Í Madríd búa um 5,5 milljónir manna og tæpar 5 í Barselóna. Spánn er fornfrægt menningarríki. Arabar og Berbar lögðu hluta af Spáni undir sig á miðöldum og voru þar kallaðir Márar. Miklar menningarminjar eru um dvöl þeirra á Spáni og er Alhambrahöllin líklega merkust þeirra. Barselóna þykir mjög athyglisverð fyrir nútímabyggingarlist og ber þar helst að nefna Antonio Gaudí, en byggingar hans eru víða í borginni.
Spánn var einræðisríki undir stjórn Franciscos Franco einræðisherra frá 1939 til 1975. Síðan er konungur Spánar Juan Carlos I frá 1975.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði