Eistland
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eistneski fáninn | Skjaldarmerki Eistlands |
Kjörorð ríkisins: Ekkert | |
Opinbert tungumál | Eistneska |
Höfuðborg | Tallinn |
Forseti | Toomas Hendrik Ilves |
Forsætisráðherra | Andrus Ansip |
Flatarmál - Heildar - Þar af vötn |
129. sæti 45.226 km2 4,56% |
Mannfjöldi
|
150. sæti
|
Gjaldmiðill | Eistnesk króna (Kroon) |
Tímabelti | UTC+2 |
Þjóðsöngur | Mu isamaa, mu õnn ja rõõm |
Þjóðarlén | .ee |
Landsnúmer | 372 |
Lýðveldið Eistland er land í Norður-Evrópu við Eystrasalt og Kirjálabotn. Það á landamæri að Rússlandi í austri og Lettlandi í suðri, það er eitt Eystrasaltslandanna, en hin eru Lettland og Litháen.
[breyta] Saga
Eistland hefur verið byggt finnsk-úgrískum þjóðflokkum síðan á forsögulegum tíma. Landið var kristnað af þýskum riddurum og dönum sem höfðu lagt það undir sig 1227. Erlend ríki sem stjórnað hafa Eistlandi í gegnum söguna eru Danmörk, Svíþjóð, Pólland og Rússland.
Eftir hrun Rússneska keisaradæmisins vegna Októberbyltingarinnar lýsti Eistland yfir sjálfstæði sínu þann 24. febrúar 1918. Landið var svo innlimað í Sovétríkin með valdi í júní 1940 og var það eitt af lýðveldum Sovétríkjanna til 20. ágúst 1991 er þau liðu undir lok og Eistland lýsti yfir sjálfstæði sínu á ný. Vegna þessa er 20. ágúst þjóðhátíðardagur Eistlands.
Rússneskur her var í landinu allt til 1994 en síðan þá hefur Eistland nýtt sér nýfengið frelsi til að mynda efnahagsleg og stjórnmálaleg tengsl við vestræn ríki. Eistland fékk ingöngu í Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið árið 2004.
[breyta] Stjórnmál
Eistland er stjórnarskrárbundið lýðræðisríki. Forseti þess er kosinn á 5 ára fresti af þinginu. Ríkisstjórnin er handhafi framkvæmdavaldsins og mynduð af forsætisráðherra og 14 öðrum ráðherrum sem forsetinn setur í embætti eftir að þingið hefur samþykkt þá.
Löggjafarvald liggur hjá þinginu sem starfar í einni deild og er kallað Riigikogu. Þingmenn eru 101 og er kjörtímabil þingsins 4 ár. Hæstiréttur landsins er handhafi dómsvalds og eru dómarar 17. Forseti hæstaréttar er valinn af þinginu og í kjölfarið skipaður af forseta ævilangt.
[breyta] Sýsluskipan
Eistlandi er skipt í fimmtán sýslur:
- Harju-sýsla
- Hiiu-sýsla
- Ida-Viru-sýsla
- Jõgeva-sýsla
- Järva-sýsla
- Lääne-sýsla
- Lääne-Viru-sýsla
- Põlva-sýsla
- Pärnu-sýsla
- Rapla-sýsla
- Saare-sýsla
- Tartu-sýsla
- Valga-sýsla
- Viljandi-sýsla
- Võru-sýsla
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði