Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
2. janúar er 2. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 363 dagar (364 á hlaupári) eru eftir af árinu.
- 1793 - Rússland og Prússland skiptu Póllandi á milli sín.
- 1870 - Bygging Brooklyn-brúarinnar hófst.
- 1871 - Stöðulögin sett. Þau kváðu á um að Ísland væri óaðskiljanlegur hluti hins danska ríkis, en þó með sérstök landsréttindi.
- 1887 - Prentarafélagið, fyrsta verkalýðsfélagið á Íslandi, stofnað.
- 1899 - KFUM stofnað á Íslandi af séra Friðriki Friðrikssyni.
- 1900 - Chicago-skurðurinn var opnaður.
- 1908 - Lögbirtingablaðið kom fyrst út.
- 1915 - Táragas var í fyrsta sinn notað í hernaði er Þjóðverjar beittu því gegn Rússum.
- 1959 - Sovétríkin skutu á loft fyrsta geimfarinu, Luna 1, sem fór á braut um sólina 2 dögum síðar.
- 1994 - Flestir sjómenn á Íslandi fóru í verkfall, sem stóð í 14 daga, þangað til Alþingi setti bráðabirgðalög sem gerðu verkfallið ólöglegt.
[breyta] Hátíðis- og tyllidagar
- Áttundi dagur og níunda nótt jóla í vestrænni kristni.