Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Litín - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Litín

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

  Vetni  
Litín Beryllín
  Natrín  
Útlit Litín
Efnatákn Li
Sætistala 3
Efnaflokkur Alkalímálmur
Eðlismassi 535,0 kg/
Harka 0,6
Atómmassi 6,941 g/mól
Bræðslumark 453,69 K
Suðumark 1615,0 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Málmur
Lotukerfið

Litín, (líþíum, liþín eða lítíum; á grísku lithos sem þýðir steinn) er frumefni með efnatáknið Li og er númer þrjú í lotukerfinu. Efnið í hreinu formi er mjúkur, silfurgrár málmur sem tærist og missir gljáann við snertingu við loft eða vatn. Er það léttasta fasta efnið og er aðallega notað í varmaflutningsefnum, í rafhlöðum og í geðstillandi efnasamböndum.

Efnisyfirlit

[breyta] Almenn einkenni

Litín er léttast allra málma og hefur hálfann eðlismassa vatns. Þetta er silfraður málmur og svo mjúkur að hægt er að skera það með beittum hníf. Eins og allir alkalímálmar hefur litín einungis eina gildisrafeind, og tapar þeirri rafeind auðveldlega og breytist þá í jákvætt hlaðna jón með ysta rafeindahvelið tómt. Sökum þess hvarfast litín auðveldlega í vatnii og finnst því ekki eitt og sér í náttúrunni. Þrátt fyrir það er það ekki jafn hvarfgjarnt og hið efnafræðilega svipaða frumefni natrín.

Þegar því er haldið yfir eldi, gefur það frá sér sláandi fagurrauðan lit, en þegar það brennur kröftuglega verður það skínandi hvítt. Ef það kemst í snertingu við vatn eða loft kviknar í því. Þetta er eini málmurinn sem að hvarfast við nitur við stofuhitastig. Litín hefur háa eðlisvarmarýmd, 3582 J/(kg·K), og stórt hitastigssvið í vökvaformi, sem veldur því að það er mjög nytsamlegt efni.

[breyta] Notkun

Vegna mikillar eðlisvarmarýmdar er litín notað í varmaflutning. Það er einnig mikilvægt efni í forskaut rafhlaðna sökum hás rafefnamættis. Auk þess að vera léttari en hið almenna þurrhlað, framleiða þessar rafhlöður hærri spennu (3 volt á móti 1,5 voltum). Önnur not:

  • Litínsölt eins og til dæmis liþínkarbónat (Li2CO3), litínsítrat og litínórótat sem eru geðstillandi efni. Þau eru notuð í meðferð á geðhvarfasýki, því ólíkt öðrum geðstillandi efnum, vinna þau á bæði geðhæð og þunglyndi. Litín er einnig notað til að auka áhrif annara geðdeyfðarlyfja. Nytsamlegt magn litíns í þessum tilgangi er aðeins rétt undir eituráhrifum og þarf því að fylgjast vel með styrki þess í blóði á meðan meðferð stendur.
  • Litínklóríð og litínbrómíð eru gríðarlega vökvasælt og er iðulega notað sem þurrkefni.
  • Litíntsterat er algengt háhitasmurefni til hverskyns nota.
  • Litín er notað sem málmblendisþáttur í efnasmíði lífrænna efnasambanda.
  • Það er notað sem bráð til að hjálpa sambræðslu málma í rafsuðu og lóðningu. Það kemur einnig í veg fyrir myndun oxíða á meðan suðu stendur með því að gleypa í sig óhreinindi. Þessi bræðsluhæfileiki er einnig mikilvægur sem bráð í framleiðslu á leirmunum, glerung, og gleri.
  • Litínhýdroxíð er notað til að vinna koltvísýring úr lofti í geimförum og kafbátum. Hvaða alkalíhýdroxíð sem er gleypir í sig CO2 en litínhýdroxíð er tilvalið sökum lágs eðlismassa.
  • málmblöndur litíns við ál, kadmín, kopar og mangan eru notaðar í afkastamikla hluti í flugvélar.


[breyta] Varúðarráðstafanir

Litín í hreinu formi er gríðarlega eldfimt og stafar af því svolítil sprengihætta í snertingu við loft og þá sérstaklega vatn. Erfitt er að slökkva litínelda, þarf til þess sérstök efni sem hönnuð eru til þess að slökkva í þeim. Litín er einnig tærandi og þarf að meðhöndla það á sérstakan hátt til að koma í veg fyrir snertingu við húð. Geyma skyldi litín í óhvarfgjörnu efnasambandi eins og til dæmis nafta eða kolvatnsefni. Litínefnasambönd gegna engu líffræðilegu hlutverki og eru talin örlítið eitruð. Þegar það er notað sem lyf, verður að fylgjast mjög varlega með styrk Li+ í blóði.

[breyta] Tengill

Wiktionary merkið
Orðabókaskilgreiningu fyrir Litín er að finna í Wikiorðabókinni.


Þessi grein sem fjallar um efnafræði er stubbur.
Þú getur hjálpað til með því að bæta við hana

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com