Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Vatíkanið - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Vatíkanið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Status Civitatis Vaticanae
Stato della Città del Vaticano
Fáni Vatíkansins Skjaldamerki Vatíkansins
Fáni Vatíkansins Skjaldarmerki Vatíkansins
Kjörorð ríkisins: Ekkert
mynd:LocationVaticanCity.png
Opinbert tungumál Latína (Ítalska er þó almennt notuð og Svissneski vörðurinn talar þýsku)
Höfuðborg Vatíkanið
Páfi Benedikt XVI
Ríkisráðherra Angelo Cardinal Sodano
Flatarmál
 - Samtals
 - % vatn
193. sæti
0,44 km²
Á ekki við
Fólksfjöldi
 - Samtals (2004)
 - Þéttleiki byggðar
193. sæti
921
2093/km²
Gjaldmiðill Evra
Tímabelti
 - Sumartími
UTC +1
UTC +2
Þjóðsöngur Inno e Marcia Pontificale
Þjóðarlén .va
Alþjóðlegur símakóði 379

Vatíkanið (eða Vatikanið eða Páfagarður) (latína: Status Civitatis Vaticanae, ítalska: Stato della Città del Vaticano), er landlukt land stjórnað af Hinum heilaga Páfastól (latína: Sancta Sedes), æðsta yfirvaldi kaþólsku kirkjunnar sem er einráður yfir því. Landið er landlukt en eina ríkið sem það á landamæri að er Ítalía, enda er ríkið í raun inni í Rómarborg. Þar hefur páfinn aðsetur sitt og eru þar margar kirkjur og kapellur, þeirra á meðal hin fræga Sixtínska kapella.

Efnisyfirlit

[breyta] Saga

Svæðið sem Vatikanið er á hefur lengi verið talið helgt og voru þar fáar eða engar byggingar framan af. Þar er talið að ef til vill hafi verið rómverskur grafreitur, meðal annars vegna þess að fyrsta kirkjan þar á að hafa verið reist yfir grafhýsi heilags Péturs, árið 326. Smám saman fjölgaði byggingum þar, þegar það varð aðsetur biskupsins í Róm og síðar páfans þar í borg, einkum eftir að Páfagarður fór að verða pólitísk stofnun til viðbótar við trúarlega. Eftir fall Rómverska keisaradæmisins var Róm oftast undir stjórn páfa eða einhvers veldis sem naut stuðnings hans (svo sem hins þýska Heilaga rómverska keisaradæmis). Síðar varð það svo að páfi stýrði sjálfur löndum, sem saman voru kölluð Páfaríki. Þegar mestöll Ítalía sameinaðist í eitt ríki 1861 var Róm ekki með í hinu nýja ríki, það var ekki fyrr en 1870 að Róm, og þar með Vatikanið, var innlimuð í Ítalíu og gerð að höfuðborg. Páfagarður undi sér þó aldrei í ósjálfstæðinu, eftir að hafa verið eitt mesta pólitíska afl vesturlanda. Í langan tíma voru páfarnir ekki á því að hætta öllum diplómatískum afskiptum, sem þeir þó neyddust til að gera. Það voru deilur um þessi mál milli Páfagarðs og Ítalíu allt til 1929 þegar fasistaríkisstjórnin á Ítalíu samþykkti sjálfstæði Vatikansins með Lateran-samningunum. Það var ekki fyrr en þá að Vatikanið í þeirri mynd sem við þekkjum það varð til. Á undanförnum árum, einkum í tíð Jóhannesar Páls Páfa II hefur Vatikanið svo farið að skipta sér af pólitískum málum á ný, og nýtir sér það að eiga áheyrnarsæti í flestum helstu alþjóðastofnunum nútímans.

[breyta] Efnahagur

Efnahagskerfi Vatíkansins er einstakt í heiminum. Allar tekjur þess koma frá rómversk-kaþólskum kirkjum um allan heim, sölu á minjagripum og frímerkjum eða aðgöngu að söfnum Vatíkansins. Það er engin einkageiri þar og því sem næst allir vinna fyrir sömu stofnunina, Páfagarð. Þrátt fyrir þetta óvenjulega kerfi eru aðstæður íbúa mjög góðar og jafnvel betri en íbúa Rómar sjálfrar.

[breyta] Lýðfræði

Vatíkanið hefur íbúasamsetningu, sem er frábrugðin flestum öðrum ríkjum heims vegna þess að allir íbúarnir búa þar út af starfi sínu. Meiripartur íbúanna er klerkar, sökum þess að þar eru höfuðstöðvar stærsta trúfélags heims, allt frá kardinálum yfir í presta yfir í óbreytta munka og nunnur. Flestir tala latínu starfs síns vegna, en koma frá hinum ýmsu stöðum heims og eiga því önnur móðurmál sem þeir nota dags daglega. Reyndar er stór hluti íbúanna af ítölsku bergi brotinn, en Ítalir hafa alltaf átt sterk ítök í æðstu stofnunum rómversk-kaþólsku kirkjunnar af sögulegum ástæðum. Flestir þeir sem búa í Vatíkaninu og eru ekki af klerkastétt, eru svissnesku verðirnir. Það er her hins sjálfstæða ríkis Vatíkansins, en allir sem í honum eru eru svissneskir. Af þeim sökum tala þeir þýsku sín á milli. Allir íbúar Vatíkansins eru, eðli málsins samkvæmt, rómversk-kaþólskir.

[breyta] Merkilegir staðir

Séð yfir Péturstorgið, aðalaðkomu Vatíkansins.
Enlarge
Séð yfir Péturstorgið, aðalaðkomu Vatíkansins.

Vatikanið var lengi vel ein helsta valdamiðstöð Evrópu og þar eru margar merkilegar stofnanir og byggingar. Þar er Basilíka heilags Péturs, sem er oft talin fallegasta kirkja heims, og er minna umdeilanlega sú stærsta. Þar var fyrst byggð kirkja árið 326 sem var fyrsta byggingin á því svæði sem í dag er Vatikanið. Sú sem stendur í dag var byggð á miðri 16. öld og þá voru veggir og loft skreytt með málverkum sem í dag eru mörg hver talin meðal þeirra allra fegurstu. Sixtínska kapellan var byggð á 15. öld að tilskipun Sixtusar Páfa IV og hefur sama grunnform og Musteri Salomóns. Hún er líka þakin freskum, þeirra frægust sköpun Adams. Í Vatikaninu eru rekin listasöfn, því listaverk Páfastóls eru ekki einungis þau sem á veggjunum eru, heldur líka margar styttur, málverk og fleiri stök verk. Þessi söfn eru talin hafa mörg fegurstu listaverkaverka Evrópu sem páfar hafa í gegnum tíðina sankað að sér. Auk þess hýsa þau ýmsa muni tengda sögu kristni, kaþólsku og einkum Páfastólnum sjálfum, svo sem fyrrverandi hásæti páfa. Þar að auki er í Vatikaninu eitt merkasta skjalasafn heims, Hið leynda skjalasafn Vatikansins. Þar eru geymd flest skjöl sem Páfastóll hefur látið frá sér eða sankað að sér. 1922 var ákveðið að opna hluta þessa annars leynda skjalasafns fyrir vísindamönnum til rannsókna. Í sinni tíð sem páfi hefur Jóhannes Páll páfi II svo opnað fleiri hluta safnsins og hefur hann meðal annars opnað þá hluta þess sem snúa að Heimsstyrjöldinni síðari. Enn er þó mikill hluti þessa skjalasafns algjörlega leyndur óviðkomandi og eru uppi margar samsæriskenningar um hvað þar sé geymt.

[breyta] Tenglar

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com