Eingyðistrú
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eingyðistrú er sú trú að aðeins sé til einn allsherjar Guð og allt í heimi sé undir hann sett. Útbreiddustu eingyðistrúarbrögðin eru þau Abrahamísku, svo sem Gyðingdómur, Kristni og Íslam (sem spruttu upp úr gyðingdóm). Gyðingar og Múslimar halda því þó fram að með þrenningarkenningunni hafni Kristnir hugmyndinni um einn Guð og geti því ekki talist til eingyðistrúarbragða. Önnur eingyðistrúarbrögð, minna útbreidd í dag, eru meðal annars Sóróismi, vissar gerðir og sprotar af Hindúisma og fleira.