Vladímír Pútín
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vladímír Vladímírovítsj Pútín (Владимир Владимирович Путин á rússnesku) (fæddur 7. október 1952) er núverandi forseti Rússlands.
Hann útskrifaðist frá lögfræðideild Ríkisháskólans í Leníngrad árið 1975 og hóf störf hjá KGB.
Á árunum 1985-1990 starfaði hann í Austur-Þýskalandi.
Frá árinu 1990 gegndi hann ýmsum embættum, meðal annars í Ríkisháskólanum í Leníngrad, borgarstjórn Sankti-Pétursborgar og frá árinu 1996 hjá stjórnvöldum í Kreml.
Í júlí 1998 var hann skipaður yfirmaður FSB (arftaka KGB) og frá mars 1999 var hann samtímis ritari Öryggisráðs Rússneska sambandslýðveldisins.
Frá 31. desember 1999 var hann settur forseti Rússneska sambandslýðveldisins en 26. mars 2000 var hann kosinn forseti. Hann var endurkjörinn 14. mars 2004.
Vladímír Pútín talar auk rússnesku, þýsku og ensku. Hann er giftur Ljúdmílu Aleksandrovnu Pútínu. Þau eiga tvær dætur, Maríu (f. 1985) og Katerínu (f. 1986)