Þýska
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þýska (þýska: Deutsch; framburður.) er tungumál, sem talað er og ritað aðallega í Þýskalandi. Þýska tilheyrir germönskum málum, eins og danska, norska, sænska, íslenska, færeyska, enska og hollenska. Germönsk mál flokkast síðan til indó-evrópskrar málaættar og eru fjarskyld málum eins og til dæmis sanskrít.
Þýska (Deutsch) | |
---|---|
Talað hvar: | Þýskalandi, Sviss, Austurríki auk 38 annara landa. |
Heimshluti: | Evrópa |
Fjöldi málhafa: | 120 milljónir |
Sæti: | 9 |
Ætt: | Indóevrópskt Germönsk |
Opinber staða | |
Opinbert tungumál: | Þýskalandi, Liechtenstein, Austurríki, Belgíu, Sviss og Luxemborg |
Stýrt af: | |
Tungumálakóðar | |
ISO 639-1: | de |
ISO 639-2: | ger og deu |
SIL: | GER |
Tungumál – Listi yfir tungumál | |
Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
[breyta] Einkenni
Þýska er nokkuð lík íslensku hvað varðar málfræði, m.a. varðandi beygingar á fallorðum. Nafnorðin sjálf hafa oftast sömu beygingarmynd í eintölu, ákvæðisorðin sem stýra fallinu breytast hinsvegar. Undantekningar frá þessu eru eignarfallsmyndir flestra nafnorða, veik og óreglulega beygð nafnorð auk karlkynsorða af erlendum uppruna. Nafnorðin hljóðvarpast sum hver í fleirtölu og eða bæta við sig endingu. Ólíkt flestum málum skyldri þýsku eru öll nafnorð og ávarpsfornöfn rituð með stórum staf og þérun er algeng. Í þýska stafrófinu er líka bókstafurinn ß („das Eszett“) sem ekki er að finna í öðrum germönskum málum.
[breyta] Málfræði
Orðflokkur | Dæmi | Hlutverk |
Nafnorð | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er hat Samen für den Vogel. | Að tilgreina einstaka hluti, eða flokka hluta, jafnt raunverulega sem ímyndaða. |
Sagnorð | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er hat Samen für den Vogel. | Að gefa til kynna aðgerð eða atburð. |
Lýsingarorð | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er hat Samen für den Vogel. | Að lýsa einhverjum hlut nánar. Oftast notað með nafnorði. |
Fornöfn | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er hat Samen für den Vogel. | Gefa til kynna með almennum hætti um hvern eða hvað setningin á við. |
Greinir | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er hat Samen für den Vogel. | Að gera nafnorð ákveðin (ákveðinn greinir) eða óákveðin (óákveðinn greinir). Greinir getur verið viðskeyttur eða settur fyrir framan nafnorð sem sér orð. |
Töluorð | Siebzehn große Vögel springen zu den drei wichtigen Männern, die in dem Garten stehen. Sie erhielten zwei Säcke Samen für die Vögel. | Gefa til kynna fjölda eða magn. |
Smáorð í þýsku | ||
Forsetningar | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er hat Samen für den Vogel. | Hafa áhrif á merkingu fallorðs í setningu. |
Atviksorð | ||
Nafnháttarmerki | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er denkt, daß es sehr nett ist zu geben. | Nafnháttarmerkið er orðið „zu“ á undan sagnorði í nafnhætti. Sögn í nafnhætti er án tíðar og endar oftast á „e“. |
Samtengingar | Der große Vogel springt zu dem wichtigen Mann, der in dem Garten steht. Er denkt, daß es sehr nett ist zu geben. | Tengir saman einstök orð eða setningar til að mynda málsgrein. Skiptist í aðaltengingar og aukatengingar. |
Upphrópanir |
Ath: Þetta þarfnast yfirferðar.