Her
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Her hefur verið notað um ýmis mismunandi fyrirbrigði í gegnum tíðina. Forsögulegir herir samanstóðu líklega af mönnum með steina og tréspjót, en í gegnum tíðina hefur vopnabúnaður hermanna tekið miklum framförum. Dæmi um mikilvæga þróun var þegar herir tóku í notkun sína hesta, járnsverð, boga og örvar, ýmis umsátursvopn, framhlaðninga og önnur skotvopn.
Orðið her vísar yfirleitt til varanlegs hóps vopnaðra manna sem hlotið hefur þjálfun í vopnabúnaði, þótt ýmsir hafi notað orðið um óformlegri vopnaða hópa.