Johnny Cash
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
John R. Cash (26. febrúar 1932 - 12. september 2003), fæddur J. R. Cash var áhrifamikill bandarískur kántrísöngvari, gítarleikari og lagahöfundur.
Cash var þekktur fyrir djúpa, dimma og sérstæða rödd, boom chicka boom hljóm hljómsveitar sinnar Tennessee Three og síðast en ekki síst dökkan klæðaburð og fas sem að ávann honum gælunafnið "svartklæddi maðurinn". Hann hóf hverja tónleika með hinni einföldu kynningu: „Halló, ég er Johnny Cash".
Tónlist Cash var innblásin af viðburðaríku einkalífi og erfiðleikum. Á meðal vinsælustu laga hans eru „I Walk The Line“, „Folsom Prison Blues“, „Ring of Fire“, „Man in Black“ og „Hurt“. Eftir hann liggja einnig lög í gamansamari kantinum eins og „One Piece at a Time“, „The One on the Right is on the Left“ og „A Boy Named Sue“.
Tónlistarferill Cash entist í næstum fimm áratugi og í hugum margra er hann sem holdgervingur kántrítónlistarinnar þrátt fyrir að hann hafi sjálfur haft óbeit á hinni ráðandi Nashville stefnu. Líkt og önnur stór nöfn í tónlistarheiminum eins og Ray Charles, Bítlarnir, Bob Dylan og Elvis Presley þá takmörkuðust áhrif Cash ekki við neina einstaka tónlistarstefnu. Hann gerði lög sem geta flokkast sem rokk, blús, rokkabillí, þjóðlagatónlist eða gospel.
Árið 2005 var frumsýnd verðlaunamyndin Walk the Line sem byggð er á lífi Cash og stormasömu hjónabandi hans og tónlistarkonunnar June Carter Cash.