Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
John Stuart Mill - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

John Stuart Mill

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Vestræn heimspeki
Heimspeki 19. aldar
(Nýaldarheimspeki)
John Stuart Mill (1806-1873)
Nafn: John Stuart Mill
Fædd/ur: 20. maí 1806 (Pentonville í London á Englandi)
Dáin/n: 8. maí 1873 (Avignon í Frakklandi)
Skóli/hefð: Raunhyggja, nytjastefna
Helstu ritverk: Frelsið, Nytjastefnan, Kúgun kvenna, Rökkerfi
Helstu viðfangsefni: siðfræði, stjórnspeki, þekkingarfræði, vísindaheimspeki, hagfræði
Markverðar hugmyndir: greinarmunur á opinberu lífi og einkalífi, stigveldi ánægjunnar í nytjastefnunni, frjálshyggja, kvenréttindi, aðleiðslurökkerfi
Áhrifavaldar: Platon, Aristóteles, Thomas Hobbes, John Locke, Jeremy Bentham, Adam Smith, David Ricardo, Alexis de Tocqueville, James Mill
Hafði áhrif á: Bertrand Russell, J.L. Austin, John Rawls, Robert Nozick, Karl Popper, Ronald Dworkin, H.L.A. Hart, Peter Singer

John Stuart Mill (20. maí 1806 - 8. maí 1873) var frjálslyndur breskur heimspekingur og einn frægasti málsvari nytjastefnu. Hann ritaði Frelsið 1859 og Um kúgun kvenna 1869. Hann sat á þingi frá 1865 til 1868. Hann var mun frægari talsmaður nytjahyggju en guðfaðir hans Jeremy Bentham.

Efnisyfirlit

[breyta] Lífshlaup

John Stuart Mill fæddur í Pentonville, London, var elsti sonur skoska heimspekingsins og sagnfræðingsins James Mill, sem kenndi syni sínum ásamt þeim Jeremy Bentham og Francis Place.[1] Menntun hans var nokkuð sérstök, þar sem hann lærði að lesa á ensku og forngrísku þriggja ára gamall og latínu átta ára gamall. Hann lærði einnig stærðfræði, fornfræði, enska sögu og nam fræði Adams Smith og Davids Ricardo um efnahagsmál sem þóttu mjög móðins á þeim tímta. Árið 1823 stofnaði hann ásamt Jeremy Bentham Westminster Review sem var blað róttækra heimspekinga. Sökum þessa stífa náms fékk John taugaáfall liðlega tvítugur að aldri eins og hann lýsir því í sjálfsævisögu sinni. Hann jafnaði sig þó um síðir m.a. með lestri á ljóðum William Wordsworths.

Árið 1851 giftist hann Harriet Taylor eftir áralanga nána vináttu þeirra.[2] John, sem trúði á aukin réttindi kvenna, segir hana hafa verið mikinn áhrifavald í lífi sínu. Hann tileinkaði henni lokaútgáfu Frelsisins auk þess sem svo virðist að vísað sé til hennar í riti hans Kúgun kvenna. Mill starfaði fyrir Breska Austur Indíafélagið, þar sem faðir hans vann, uns rekstri þess var hætt 1858. Hann var kjörinn á þing árin 1865-1868 sem óháður frambjóðandi en þar talaði hann m.a. fyrir því að létta byrðar Íra og að konur fengju kosningarétt. Á sama tíma gegndi hann stöðu rektors við St. Andrews háskóla. Hann var guðfaðir heimspekingsins og stærðfræðingsins Bertrand Russells. Mill dó í Avignon í Frakklandi árið 1873 þar sem hann er grafinn ásamt konu sinni.

[breyta] Frelsið

Frelsið (e. On Liberty) kom fyrst út í Englandi árið 1859.[3] Á Íslandi kom það fyrst út í þýðingu Jóns Ólafssonar á vegum Hins íslenzka þjóðvinafélags árið 1886. Árið 1970 kom það út í annarri þýðingu Jóns Hnefils Aðalsteinssonar og Þorsteins Gylfasonar í ritröð Lærdómsrita Hins íslenska bókmenntafélags. Það fjallar fyrst og fremst um borgaraleg réttindi sem mörg hver eru í dag tryggð í stjórnarskrám ríkja.

Í ritinu áréttar Mill að frelsi sé forsenda raunverulegs lýðræðis. Hann segir aldrei vera hægt að vera svo viss í sinni sök hvað eitthvað varðar að hægt sé að meina öðrum að tjá sig um það. Það verði því að vera frelsi til tjáningar, svo að allar skoðanir fái að heyrast, til að skapa meiri og betri þekkingu. Mismunandi skoðanir verða til við fjölbreytileika og fjölbreytni verður þá og því aðeins til að fólki sé frjálst að hegða sér eins og það vill og hafa þær skoðanir sem því sýnist.

Takmarkanir verða þó að vera á frelsinu, þó þær minnstu mögulegu, þannig að ríkinu sé fært að tryggja öryggi borgaranna. Mill áleit sem svo að frelsi væri það að geta gert „hvað svo sem manni lystir svo lengi sem það skaði ekki aðra“. Hann taldi það einnig brjóta á frelsi annara ef maður gæti komið í veg fyrir að aðrir hlytu skaða en stæði aðgerðarlaus hjá t.d. með því að kasta ekki björgunarhring til drukknandi manns.

Rit hans um réttindi kvenna Kúgun kvenna (e. The Subjection of Women) kom út í íslenskri þýðingu árið 2003.[4]

[breyta] Siðfræði: Nytjastefnan

Siðfræðikenning Mills kallast nytjastefna og er svokölluð leikslokasiðfræði.[5] Mill setti kenninguna fram í ritinu Nytjastefnan (e. Utilitarianism). Löng hefð bjó að baki þessari siðfræði. Megináhrifavaldar Mills voru Jeremy Bentham og faðir Mills, James Mill en leikslokasiðfræði átti rætur að rekja til skoska heimspekingsins Davids Hume.[6]

Útgáfa Mills af nytjastefnunni er þekkt m.a. fyrir „hámarkshamingjulögmálið“ sem er einn meginmunurinn á kenningu Mills og annarri leikslokasiðfræði.[7] Leikslokasiðfræði heldur því fram að siðferðilega rétt athöfn sé sú sem hefur bestar afleiðingar. Hámarkshamingjulögmálið segir að allar athafnir manns eigi að miða að því að hámarka hamingju sem flestra. Meginmunurinn á nytjastefnunni og annarri leikslokasiðfræði er því fólginn í viðbót nytjastefnunnar sem kveður á um að bestu afleiðingarnar séu þær sem hámarka hamingju sem flestra.

Eitt helsta framlag Mills til nytjastefnunnar var rökin fyrir stigskiptingu ánægjunnar.[8] Bentham taldi alla hamingju jafna en Mill færir rök fyrir því að vitsmunaleg og siðferðileg ánægja sé æðri líkamlegri ánægju. Mill greinir á milli hamingju og þess að vera sáttur og heldur því fram að hamingjan sé mikilvægari en að vera sáttur. Mill kom orðum að þessari skoðun með því að segja að það væri betra að vera Sókrates vansæll en ánægður kjáni.

[breyta] Hagfræði

Í hagfræði aðhylltist Mill frjáls viðskipti en sætti sig þó við aðhald og afskipti, svo sem í formi skatts á áfengi, ef nytsemisrök væru fyrir því.[9] Hann féllst einnig á löggjöf til verndar velferð dýra.[10] Mill taldi að „jafnrétti í skattheimtu“ þýddi „jöfn fórn“ og að skattþrepakerfi refsaði þeim sem ynnu meira og væru duglegari að spara og væri þess vegna „mild útgáfa af ráni“.[11]

Rit Mills um hagfræði, Frumatriði stjórnspekilegrar hagfræði (e. Principles of Political Economy), sem kom fyrst út árið 1848, var ein víðlesnasta bók um hagfræði á síðari hluta 19. aldar. Líkt og rit Adams Smith, Auðlegð þjóðanna (e. Wealth of Nations), áður fyrr, vofði rit Mills yfir allri hagfræðikennslu. (Bókin var meðal meginkennsluefnis í Oxford háskóla allt til ársins 1919).

[breyta] Þekkingarfræði og vísindaheimspeki

Eitt mikilvægasta rit Mills var Rökkerfi (e. A System of Logic, Ratiocinative and Inductive), sem hann endurbætti nokkrum sinnum. Það var meginrit Mills um þekkingarfræði[12] og vísindaheimspeki.[13] Meininnblátur Mills var rit Williams Whewell History of the Inductive Sciences sem kom út 1837. Frægð verksins hvílir einkum á greiningu Mills á tilleiðslu, andstætt rökhendum Aristótelesar, sem eru dæmi um afleiðslu. Mill lýsir fimm meginreglum um tilleiðslu sem eru þekktar sem aðferð Mills. Reglurnar byggjast allar á útilokunaraðferð og eru í raun flóknar útgáfur af útilokunaraðferð sem beita má í ólíkum aðstæðum.

Ritið var öðrum þræði tilraun Mills til að setja fram þekkingarfræði í anda Johns Locke.

[breyta] Ritverk

Mikilvægustu ritin eru feitletruð.

  • (1843) A System of Logic (Rökkerfi)
  • (1844) Essays on Some Unsettled Questions of Political Economy (Ritgerðir um ósvaraðar spurningar varðandi stjórnspekilega hagfræði)
  • (1848) Principles of Political Economy (Frumatriði stjórnspekilegrar hagfræði)
  • (1859) On Liberty (Frelsið)
  • (1861) Considerations on Representative Government (Hugleiðingar um fulltrúastjórn)
  • (1863) Utilitarianism (Nytjastefnan)
  • (1865) Examinations of Sir William Hamilton's Philosophy (Rannsóknir á heimspeki sir Williams Hamilton)
  • (1865) Auguste Comte and Positivism (Auguste Comte og framstefnan)
  • (1867) Inaugural Address at St. Andrews (Innsetningarfyrirlestur við St. Andrews háskóla)
  • (1869) The Subjection of Women (Kúgun kvenna)
  • (1873) Autobiography (Sjálfsævisaga)
  • (1874) Three Essays on Religion (Þrjár ritgerðir um trúarbrögð)

[breyta] Neðanmálsgreinar

  1. Um ævi Mills má lesa hér.
  2. Um Harriet Taylor Mill má lesa hér.
  3. Um stjórnspeki Mills, sjá C.L. Ten, „Democracy, socialism, and the working classes“ í John Skorupski (ritstj.), The Cambridge Companion to Mill (Cambridge: Cambridge University Press, 1998): 372-395.
  4. Um skoðanir Mills á réttindum kvenna má lesa hér. Sjá einnig Mary Lyndon Shanley, „The subjection of women“ í John Skorupski (ritstj.), The Cambridge Companion to Mill (Cambridge: Cambridge University Press, 1998): 396-422.
  5. Um siðfræði Mills má lesa hér. Sjá einnig Wendy Donner, „Mill's utilitarianism“ í John Skorupski (ritstj.), The Cambridge Companion to Mill (Cambridge: Cambridge University Press, 1998): 255-292.
  6. Sjá „Consequentialism“ hjá Stanford Encyclopedia of Philosophy.
  7. Sjá hér
  8. Um stigskiptinguna er m.a. fjallað hér
  9. Um hagfræði Mills má lesa hér. Sjá einnig Jonathan Riley, „Mill's political economy: Ricardian science and liberal utilitarian art“ í John Skorupski (ritstj.), The Cambridge Companion to Mill (Cambridge: Cambridge University Press, 1998): 293-337.
  10. [1]
  11. [2]
  12. Um þekkingarfræði Mills má lesa hér og hér.
  13. Um vísindaheimspeki Mills má lesa hér og hér. Sjá einnig Geoffrey Scarre, „Mill on induction and scientific method“ í John Skorupski (ritstj.), The Cambridge Companion to Mill (Cambridge: Cambridge University Press, 1998):112-138

[breyta] Frekari fróðleikur

  • Ryan, Alan, J.S. Mill (London: Routledge and Kegan Paul, 1974).
  • Skorupski, John, John Stuart Mill (London: Routledge, 1989).
  • Skorupski, John (ritstj.), The Cambridge Companion to Mill (Cambridge: Cambridge University Press, 1998).

[breyta] Tengt efni

[breyta] Tenglar

Wikisource
Á Wikisource er að finna verk eftir eða um:
Wikiquote hefur upp á að bjóða safn tilvitnana á:
Þetta er gæðagrein
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com