Fornfræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fornfræði eða klassísk fræði er fræðigrein sem fjallar um sögu, menningu og arfleifð klassískrar menningar Grikkja og Rómverja. Viðfangsefni fornfræðinga eru margvísleg og vinnubrögð þeirra einnig. Innan fornfræðinnar vinna fræðimenn ýmist að sagnfræði, heimspeki, bókmenntasögu eða málvísindum að svo miklu leyti sem þessar greinar fást við fornöldina. Einkum er það málakunnátta í forngrísku og latínu, sameiginleg þekking á bókmenntum og öðrum heimildum fornaldar og þjálfun í klassískri textafræði sem sameinar ólíka fornfræðinga.
Tímabilið sem fornfræðin fjallar um nær í grófum dráttum frá um 2000 f.Kr. er hópar grískumælandi fólks streymdu inn í Grikkland, til um 500 e.Kr. eftir hrun Vestrómverska ríkisins. Fornfræðingar vinna náið saman með fornleifafræðingum einkum í rannsóknum á elsta tímabilinu en einnig á síðari hlutum tímabilsins.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Frekari fróðleikur
- Beard, Mary og John Henderson, Classics: A Very Short Introduction (Oxford: Oxford University Press, 1995) ISBN 0192853139 (2000, ný útg.) ISBN 0192853856
- Dover, Kenneth (ritstj.), Ancient Greek Literature (2. útg.) (Oxford: Oxford University Press, l997).
- Hornblower, Simon og Antony Spawforth (ritstj.), The Oxford Classical Dictionary (endursk. 3. útg.) (Oxford: Clarendon Press, 2003). ISBN 0198606419
- Howatson, M.C. (ritstj.), The Oxford Companion to Classical Literature (Oxford: Oxford University Press, l989).
- Reynolds, L.D. og N.G. Wilson, Scribes and Scholars: A Guide to the Transmission of Greek & Latin Literature (3. útg.) (Oxford: Oxford University Press, l991).
- Todd, Richard B. (ritstj.), Dictionary of British Classicists 1500–1960 (Bristol: Thoemmes Continuum, 2004) ISBN 1855069970