Tertíertímabilið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tertíertímabilið eða bara tertíer (=„þriðja tímabilið“) er jarðsögulegt tímabil sem kemur á milli krítartímabilsins og kvartertímabilsins. Tímabilið nær nokkurn veginn frá dauða risaeðlanna fyrir 65 milljónum ára að upphafi síðustu ísaldar fyrir um 1,6 milljónum ára. Ísland verður til á tertíertímabilinu fyrir um 20 milljónum ára.
Tertíertímabilið skiptist í:
- Paleósen (65 - 58 milljónir ára)
- Eósen (58 - 36 milljónir ára)
- Ólígósen (36 - 24 milljónir ára)
- Míósen (24 - 5,2 milljónir ára)
- Plíósen (5,2 - 1,6 milljónir ára)