Skarkoli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skarkoli | |||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
|
|||||||||||||||
Pleuronectes platessa Linnaeus, 1758 |
|||||||||||||||
|
Skarkoli eða rauðspretta (fræðiheiti Pleuronectes platessa) er flatfiskur og botnfiskur sem finnst á 0-200 m dýpi á sand- og leirbotni. Skarkoli er algengur á grunnslóð allt í kringum Ísland en mest er af honum fyrir vestan- og sunnanvert landið. Hann grefur sig oft á botninn þannig að augun ein standa upp úr.
Algeng stærð hér við Ísland er 30–50 sm. Liturinn er breytilegur eftir botnlagi og lit botnsins. Hreistur skarkola er slétt og mjög smátt og slétt og ekki skarað. Í roðinu eru misstórir rauðir blettir. Kjafturinn er lítill og tennurnar smáar. Vinstri hliðin er oftast hvít. Skarkoli lifir á ýmis konar hryggleysingjum, skeldýrum, smákrabbadýrum og ormum og ýmsum smáfiskum svo sem sandsílum.
[breyta] Veiðar á skarkola
Skarkoli er aðallega veiddur í dragnót og botnvörpu. Skarkolaaflinn var 5.800 tonn árið 2005. Stofn skarkola við Ísland hefur minnkað vegna ofveiði.
[breyta] Lífsferill
Hrygnur verða kynþroska á aldrinum 3 til 7 ára gamlar.
Hrygning: Hrygning skarkola við Ísland fer að mestu leyti fram á 50–100 m dýpi í hlýja sjónum fyrir sunnan landið og svo að einhverju leyti í þeim kalda fyrir Norðan. Hrygningin hefst í febrúarlok við sunnan vert landið og stendur hæst í mars og apríl. Við Norðurland hefst hrygning í lok mars með hámarki í maí-júní.
Hrygnurnar hrygna eggjum á 3 til 5 daga fresti í um 1 mánuð. Eggin klekjast út eftir um tvær vikur og eru egg og lirfur sviflæg. Lirfurnar myndbreytast eftir 8 til 10 vikur en það fer eftir hitastigi og hvenær þær setjast að þar sem sjávarfalla gætir við sandstrendur. Lirfurnar láta sig berast með straumi og færast nær landi þegar flæðir að og berast með útfallinu fjær landi. Þegar lirfan hefur hafnað á heppilegum stað þá hefst myndbreyting. Það getur tekið allt að 10 daga. Ungviði sest að í grunnu vatni þar sem sjávarfalla gætir og yngstu skarkolarnir stranda stundum í allt að eina viku í grunnum fjörupollum. Þegar skarkolar verða eldri þá sækja þeir út á meira dýpi.
Skarkoli er eftirsóttur matfiskur og í Bretlandi er hann oft hafður í "fish and chips". Í Danmörku er skarkoli einn algengasti matfiskurinn.
[breyta] Heimildir
- „Skarkoli Skarkoli“. Sótt 8. ágúst 2006.
- Greinin „European plaice“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 8. ágúst 2006.