Peking
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Peking er höfuðborg Kína. Á kínversku er nafn borgarinnar Beijing., (北京), merkir það Norður höfuðborg. Norður vestur og suður af Peking er Hebei-hérað og í suðaustri er sveitarfélagið Tianjin.
Peking er næstfjölmennasta borg landsins næst á eftir Sjanghæ. Peking er miðpunktur mennta og menningar auk þess sem stjórnvöld stýra landinu þaðan. Sjanghæ og Hong Kong eru hinsvegar meira áberandi hvað varðar efnahagsleg umsvif.
Efnisyfirlit |
[breyta] Nafn
Frá 1928 [1] til 1949, var borgin kölluð Beiping (北平), sem þýðir „Norðlægur friður“. Nafninu var breytt þegar Kuomingtang setti á fót höfuðborg í Nanking (南京) suður höfuðborg.
Við stofnun Alþýðulýðveldisins Kína endurreisti Kommúnistaflokkur Kína Peking sem höfuðborg.
[breyta] Saga
Borgir stóðu hvar nú er Peking á fyrsta árþúsundi fyrir Krist og höfuðborg Yan ríkisins (燕), var stofnuð við Ji (T: 薊 / S: 蓟), nærri því hvar Peking stendur í dag.
Á tímum Sui og Tang ættanna, voru einungis litlir bæjir hvar nú er Peking. Fjöldi fornra skálda sótti staðin og syrgði fornar borgir.
Árið 936, afsalaði seinni Jin Ættin (936-947) sér stórum hluta norður Kína á sitt vald, þar með talið hvar Peking stendur nú, til Liao Ættarinnar. Árið 938 reisti Liao Ættin borg hvar nú er Peking og kallaði hana Nanjing ("suður höfuðborg"). Árið 1125, innlimaði Jin Ættin Liao, og flutti höfuðborg sína árið 1153 til Peking en kallaði hana Zhongdu (中都), eða „Mið höfuðborgin“, suðvestur af miðborg Peking dagsins í dag.
Mongólar brenndu Zhongdu til grunna 1215 og byggðu sína egin stór höfuðborg, Dadu (大都), norður af höfuðborg Jin ættarinnar árið 1267, markar það upphaf Peking. Markó Pólókallaði svæðið "Cambuluc". Kublai Khan, sem vildi verða Keisari Kína, byggði sína borg svo norðarlega fremur en nær miðju landsins svo hún stæði nær þeim stað hvar hans veldi var mest, í Mongólíu. Enn má sjá leifar af borgarmúr reistum af Mongólum í Peking.
Þriðji Ming Keisarinn Zhu Di (朱棣) flutti höfuðborg Ming ættarinnar frá Nanjing til Peking (北京), árið 1403. Meðan Ming ættin ríkti tók borgin á sig mikinn hluta núverandi myndar. Borgarmúrar Peking frá Ming tímabilinu þjónuðu sem borgarmúrar uns þeir voru rifnir og Annar hringvegurinn lagður hvar þeir stóðu áður.
[breyta] Landafræði
Peking stendur á norður odda hinnar svo til þríhyrndu norður kína sléttu sem er opin til suðurs og austurs. Fjöllin í norðri skýla borginni og landbúnaðarhéruðum frá eyðimörkinni í norðri.
Kínamúrinn, liggur að hluta til í gegnum nyrðri hluta borgarinnar, varði borgina frá áhlaupum flækinga úr auðninni.
[breyta] Borgin
[breyta] Götur
Chang'an breiðgata liggur þvert í gegnum miðja borgina frá austri til vesturs fram hjá Tian'anmen. Kínversk stjórnvöld kalla breiðgötuna oft "Fyrsta stræti Kína".
[breyta] Ferðamennska
Tian'anmen (Hlið hins himneska friðar) er andlegur miðdepill Kína, hvort sem er vegna sjálfs sín eða þeirrar staðreyndar að þar er aðgangurinn að Forboðnu borginni. Þá er og á heimsminjaskrá Badaling bútur úr Kínamúrnum, Sumar höllin, og Hið Himneska Hof.
[breyta] Athygliverðir staðir
- Bútar úr Kínamúrnum við:
- Badaling
- Juyongguan
- Mutianyu
- Simatai
- Jinshanling
- Jiankou
- Forboðna borgin (World Heritage Site)
- Torg hins Himneska friðar, site of the Tiananmen Square protests of May 4, 1919, 1976, and 1989
- Tiananmen (hlið hins Himneska friðar)
- Great Hall of the People (Löggjafar samkoman)
- Þjóðminjasafn Kína
- Smurningur Maó
- Sumarhöllin
[breyta] Útvarp
Þrjár útvarpstöðvar senda út efni á ensku: Hit FM á FM 88.7, Easy FMá FM 91.5, og Radio 774 á AM 774.
[breyta] Íþróttir
Árið 2008 mun Peking hýsa sumarólympíuleikana og sumarólympíuleika fatlaðra .
[breyta] Vinabæir
Peking hefur komið á fót vinabæjarsambandi við eftirtaldar borgir
Borg | Land | vinabæjarsamband frá: |
---|---|---|
Tokíó | Japan | 14. mars, 1979 |
New York | Bandaríkin | 25. febrúar, 1980 |
Belgrad | Serbía | 14. október, 1980 |
Líma | Perú | 21. nóvember, 1983 |
Washington, D.C. | Bandaríkin | 15. maí, 1984 |
Madríd | Spánn | 16. september, 1985 |
Rio de Janeiro | Brasilía | 24. nóvember, 1986 |
Île-de-France[2] | France | 2. júlí, 1987 |
Köln | Þýskaland | 14. september, 1987 |
Ankara | Tyrkland | 20. júní, 1990 |
Kaíró | Egyptaland | 28. október, 1990 |
Islamabad | Pakistan | 8. október, 1992 |
Jakarta | Indónesía | 8. október, 1992 |
Bangkok | Tæland | 26. maí, 1993 |
Buenos Aires | Argentína | 13. júlí, 1993 |
Seúl | Suður Kórea | 23. október, 1993 |
Kíev | Úkraína | 13. desember, 1993 |
Berlín | Þýskaland | 5. apríl, 1994 |
Brussel | Belgía | 22. september, 1994 |
Hanoi | Víetnam | 6. október, 1994 |
Amsterdam | Holland | 29. október, 1994 |
Moskva | Rússland | 16. maí 1995 |
París | Frakkland | 23. október, 1997 |
Róm | Ítalía | 28. maí, 1998 |
Gauteng[3] | Suður Afríka | 6. desember, 1998 |
Ottawa | Kanada | 18. október, 1999 |
Kanberra | Ástralía | 14. september, 2000 |
Maníla | Filippseyjar | 14. nóvember, 2005 |
1: ^ A région í Frakklandi
2: ^ A province í Suður Afríku
- Heimild: www.ebeijing.gov.cn
[breyta] Tenglar
- Opinber heimasíða Peking
- upplýsingar um sumarólympíuleikana 2008
- Kort af Peking, 1560 x 1547 pixels, 645kb
- Kort af Peking svæðinu
- veðurspá
- Mannréttindi og Ólympíuleikar - OlympicWatch.org
[breyta] Fyrir ferðalanga
- ábendingar
- myndir
- upplýsingar fyrir ferðamenn
- ferðahandbók
- Smáatriði varðandi Kína
- Peking.org - Aðdráttaröfl Peking
- Leiðarvísir
- Peking ferðir
- Peking ferðaþjónusta
- Peking ferðalög
- Beijinglives.com Upplýsingar um ferðamannaiðnaðinn