Miðvikudagur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Miðvikudagur er 4. dagur vikunnar og er nafnið dregið af því að hann er dagurinn sem er í miðri vikunni. Dagurinn er á eftir þriðjudegi en á undan fimmtudegi. Til forna var dagurinn kenndur við Óðin, æðsta ásinn í norrænni goðafræði, og hét þá Óðinsdagur. Enn sjást merki þess bæði í dönsku (og öðrum norrænum málum) og ensku, Onsdag og Wednesday. Núverandi heiti á sér hinsvegar samsvörun í þýsku: Mittwoch.
Vika |
Sunnudagur | Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur |