William Jefferson Clinton
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
William Jefferson Clinton (skírður William Jefferson Blythe; f. 19. ágúst 1946) er bandarískur stjórnmálamaður sem var 42. forseti Bandaríkjanna frá 20. janúar 1993 til 20. janúar 2001. Áður en hann varð forseti hafði hann setið í nær tólf ár sem fylkisstjóri Arkansas. Hann er giftur Hillary Rodham Clinton, öldungadeildarþingmanni fyrir New York. Síðustu embættisár hans einkenndust af stjórnmálahneyksli þar sem hann var sakaður um að hafa borið ljúgvitni og reynt að hamla réttvísinni í málum sem vörðuðu samband hans við Monicu Lewinsky og áreitni við fyrrum starfsmann Arkansas-fylkis, Paulu Jones, sem ákærði hann.
Fyrirrennari: George H. W. Bush |
|
Eftirmaður: George W. Bush |