Wikipedia:Viðhald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eðli Wikipedia er slíkt að hvorki verkefnið í heild sinni né einstakar greinar munu nokkurn tíman teljast fullkláraðar, það er ávallt hægt að bæta við, laga til og leiðrétta. Það eru þó til greinar sem þarfnast breytinga meira en aðrar af ýmsum ástæðum. Hægt er að merkja slíkar greinar og vekja þannig athygli annarra á vandamálinu. Hér að neðan er yfirlit yfir þá flokka sem þessar greinar geta fallið undir.
Efnisyfirlit |
[breyta] Greinar sem þarfnast athygli
Undir þennan flokk falla greinar sem þarf nauðsynlega að laga af ýmsum ástæðum sem geta verið slæmt málfar og stafsetningarvillur, skortur á tenglum, brot á almennum stílviðmiðunum (sjá Handbók og Sýnigrein) eða af hvaða annarri ástæðu sem er.
Til þess að bæta grein í þennan flokk skal setja {{athygli|ástæða}} efst í greinina og tilgreina hvað nákvæmlega má betur fara í greininni þar sem stendur „ástæða“. Lista yfir greinar sem settar hafa verið í þennan flokk er að finna á: Flokkur:Síður sem þarfnast athygli.
[breyta] Deilur um hlutleysi
Hlutleysisreglan er grundvallarregla í greinaskrifum á Wikipedia en höfundarnir eru vissulega mannlegir og mat manna á því hvað teljast hlutlaus skrif getur verið nokkuð ólíkt. Ef þú rekst á grein sem þú telur ekki vera skrifaða frá hlutlausu sjónarmiði þá getur þú sett inn {{hlutleysi|ástæða}} efst í greinina til þess að vekja athygli á því, þar sem stendur „ástæða“ setur þú inn hvað það er nákvæmlega sem má betur fara í greininni. Greinar sem settar hafa verið í þennan flokk er að finna á: Flokkur:Umdeilt hlutleysi.
[breyta] Möguleg höfundaréttarbrot
Ólöglegt er að afrita texta sem verndaður er með höfundarétti beint inn á Wikipeda. Ekki dugir heldur til að höfundaréttarhafinn hafi veitt leyfi fyrir notkun textans á Wikipedia heldur verður hann að hafa samþykkt að textinn sé annaðhvort í almannaeign eða að hann falli undir Frjálsa GNU handbókarleyfið.
Þegar rökstuddur grunur liggur fyrir um að grein sé höfundaréttarbrot þá skal stroka innihald hennar út og í stað þess setja inn {{Höfundaréttarbrot|http://example.com}} þar sem slóðin á frumtextann kemur í stað example.com.
Ef það fæst staðfest hjá höfundaréttarhafa að um brot sé að ræða eða ef enginn hefur mótmælt innan viku þá er greininni eytt.
[breyta] Síður tilnefndar til eyðingar
Sumum greinum verður bara ekki bjargað og þá er það eina sem hægt er að gera að leyfa þeim að hverfa inn í myrkrið að eilífu. Stjórnendur eyða gjarnan uppá sitt eindæmi greinum sem eru ekkert nema þvættingur eða hégómi (það er þegar fólk býr til greinar um sjálft sig eða hljómsveitina sína t.d.). Aðrir en stjórnendur geta farið fram á að síðum sé eytt með því að bæta {{eyða|ástæða}} efst á síðuna og tilgreina hvert vandamálið er þar sem stendur „ástæða“. Lista yfir síður sem settar hafa verið í þennan flokk er að finna á: Flokkur:Eyðingartillögur.
Wikipedia samfélagið | |
---|---|
Potturinn | Samfélagsgátt | Gátlistinn | Handbókin | |
Reglur: Hlutleysisreglan | Sannreynanleikareglan | Engar frumrannsóknir | Máttarstólpar Wikipedia | |
Önnur stefnumál: Nafnavenjur | Flokkastaðall | Viðhald | Deilumál | Framkoma á Wikipediu | |
Notendur: Stjórnendur | Aldur og búseta | Hver erum við? | Notendur eftir breytingafjölda | |
Annað: Samvinna mánaðarins | Tillögur að úrvalsgreinum | Tillögur að gæðagreinum | Bezt í heimi | Merkisáfangar | Hugtakaskrá |