Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Wikipedia:Hugtakaskrá - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Wikipedia:Hugtakaskrá

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Flýtileið:
WP:ORÐ

Hugtakaská Wikipediu hefur þann tilgang að kynna nýliðum og vönum notendum þau hugtök sem notuð eru á íslenska hluta Wikipediu.

Efnisyfirlit

0–9 A Á B C D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V W X Y Ý Z Þ Æ Ö

Efst

[breyta] A

[breyta] Aðgreiningarsíða

Aðgreiningarsíða“ (e. disambiguation) er síða sem þjónar þeim tilgangi að veita yfirlit yfir margar merkingar á sama orði eða heiti. Dæmi um aðgreiningarsíðu er Mars (aðgreining). Til að tengja í aðgreiningarsíðu frá aðalnafni hennar skal skrifa {{aðgreiningartengill}} efst í greinina eins og gert er á Mars.

[breyta] B

[breyta] Breytingastríð

Breytingastríð“ eða „ritstjórnarstríð“ er það þegar tveir eða fleiri notendur breyta grein ítrekað þannig að hún falli að smekk þeirra eða taka ítrekað aftur breytingar, sem hafa verið gerðar. Breytingastríð eru óæskileg og stafa oft af því að notendur hafa ekki getað komist að samkomulagi um breytingar á spjallsíðu greinar og hafa ekki getað fengið neinn til að miðla málum.

[breyta] F

[breyta] Flokkur

Flokkur“ er safn greina um svipað efni sem að búinn er til sjálfkrafa í samræmi við flokkamerkingar sem settar eru í greinar. Slíkar flokkamerkingar eru á forminu [[Flokkur:Saga Íslands]] þar sem hlutinn eftir tvípunktinn er nafn flokksins. Flokkarnir falla svo undir yfirflokka og þannig á flokkakerfið að vera nokkurskonar tré sem að veitir aðgang að öllu efni Wikipediu. Sjá einnig: grunnflokkar

[breyta] G

[breyta] Grein

Greinar“ eru færslur eða uppflettiorð í alfræðiritinu. Þær eru síður í aðalnafnrýminu, sem er ekki tilvísanir og innihelda strenginn „[[“.

[breyta] Grein mánaðarins

Grein mánaðarins“ er stutt textabrot á forsíðunni sem er uppfært í upphafi hvers mánaðar með útdrætti úr valdri grein, gjarnan úrvalsgrein með mynd.

[breyta] H

[breyta] Hreingerning

Hreingerning“ er viðgerð á grein, sem miðar að því að leiðrétta stafsetningar- og innsláttarvillur, bæta málfar og frágang, tenglaprýða o.s.frv. þannig að greinin falli vel að stöðlum Wikipediu. Hreingerning krefst einungis ritstjórnarhæfileika en ekki sérfræðiþekkingar á efni greinar, sem gæti þurft til þess að laga innihald hennar.

[breyta] I

[breyta] Interwiki

Interwiki“ er leið til að tengjast greinum á öðrum tungumálum á sama efni. Það er gert með því að skrifa t.d. [[en: Mars (Planet)]] neðst í grein til að tengja við grein á ensku um plánetuna Mars. Þessir tenglar koma fram vinstra megin á þeim síðum sem innihalda Interwiki-tengla. Athugið að Interwiki-tenglar eru settir neðst í hverja grein.

[breyta] N

[breyta] Nafnrými

Nafnrými“ eru flokkar sem allar síður Wikipediu falla undir. Aðalnafnrýmið er frátekið undir greinar en önnur nafnrými eru til dæmis notendasíður eða spjallsíður. Nafnrýmið þekkist á forskeytinu við titil síðunnar, þessi síða tilheyrir t.d. Wikipedia: nafnrýminu en það er notað til að halda utan um allskyns upplýsingar varðandi verkefnið. Greinar hafa ekkert slíkt forskeyti.

[breyta] M

[breyta] Möppudýr

Möppudýr“ eru æðri stjórnendur. Þeir geta breytt notandanöfnum og gert aðra notendur að stjórnendum og möppudýrum. Sjá einnig: Möppudýr

[breyta] P

[breyta] Potturinn

Potturinn“ er almenn umræðusíða íslensku Wikipediu. Sjá Pottinn.

[breyta] R

[breyta] Ritstjórnarstríð

Ritstjórnarstríð“: sjá „breytingastríð“ að ofan.

[breyta] S

[breyta] Síða

Síður“ eru einstakar færslur á Wikivefnum, þær geta verið greinar, spjall, flokkar, kerfissíður o.s.frv.

[breyta] Snið

Snið“ eru síður í sniðanafnrýminu sem hægt er að fella inn í aðrar síður með því að gera {{nafn sniðs}}. Þau eru hentug til að búa til stöðluð skilaboð til að birta á mörgum síðum eða staðlaðar upplýsingatöflur. Sjá einnig lista yfir snið

[breyta] Spjall

Spjallsíður“ fylgja flestum síðum á Wikipediu, þær eru ætlaðar til umræðu um viðkomandi síðu.

[breyta] Stjórnandi

Stjórnandi“ getur tekið þátt í að ritstýra Wikipedia. Hann getur m.a. eytt myndum og greinum sem aðrir notendur hafa sent inn. Hann getur einnig bannað aðra notendur. Sjá einnig: Stjórnendur

[breyta] Stubbur

Stubbur“ er stutt grein sem engan veginn nær að gera viðfangsefni sínu full skil. Stubbarnir eru merktir með {{stubbur}} í breytingarglugganum. Lista yfir alla merkta stubba er að finna í flokknum Stubbar.

[breyta] T

[breyta] Tenglaprýða

Að „tenglaprýða“ er það sama og „wikify“ á ensku og felur í sér að tengja greinar Wikipedia innbyrðis. Sjá Wikipedia:Handbók#Tenglar fyrir leiðbeiningar um hvernig hægt er að búa til tengla.

[breyta] Tilvísun

Tilvísun“ er það sama og „Redirect“ á ensku. Þeim er ætlað að leiða lesandann á rétta grein þó að hann noti ekki nákvæmt nafn hennar í leitinni. Tilvísun er sett inn í grein á með því að gera: #tilvísun [[Grein sem vísa skal í]]. Dæmi um þetta er Seinni heimsstyrjöldin sem leiðir lesandann á Síðari heimsstyrjöldin.

[breyta] Ú

[breyta] Úrvalsgrein

Úrvalsgrein“ er grein sem er á allan hátt til fyrirmyndar, vel skrifuð og hnitmiðuð en gerir efni sínu fullnægjandi skil. Sjá einnig Úrvalsgrein

[breyta] W

[breyta] Wikimedia

Wikimedia Foundation Inc.“ eru samtök sem að halda utan um Wikipediu og systurverkefni hennar og reka vélbúnaðinn sem til þarf.

Efnisyfirlit

0–9 A Á B C D Ð E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V W X Y Ý Z Þ Æ Ö

Efst


Wikipedia samfélagið
Potturinn | Samfélagsgátt | Gátlistinn | Handbókin
Reglur: Hlutleysisreglan | Sannreynanleikareglan | Engar frumrannsóknir | Máttarstólpar Wikipedia
Önnur stefnumál: Nafnavenjur | Flokkastaðall | Viðhald | Deilumál | Framkoma á Wikipediu
Notendur: Stjórnendur | Aldur og búseta | Hver erum við? | Notendur eftir breytingafjölda
Annað: Samvinna mánaðarins | Tillögur að úrvalsgreinum | Tillögur að gæðagreinum | Bezt í heimi | Merkisáfangar | Hugtakaskrá
Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com