Schengen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Schengen er vínræktunarþorp í suðaustur Lúxemborg nærri þeim stað sem landamæri Þýskalands, Frakklands og Lúxemborg koma saman. Árið 2004 bjuggu þar 425 manns.
Þorpið varð frægt 14. júní 1985 þegar Schengen-sáttmálinn var undirritaður á skipinu Princesse Marie-Astrid á Moselle ánni við Schengen.