Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Rökvilla - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Rökvilla

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Rökvilla er það þegar rök fela í sér villu og ganga af þeim sökum ekki upp eða leiða til mótsagnar. Formlegar rökvillur eru villur þar sem niðurstöðuna leiðir ekki af forsendunum. Í víðari skilningi ná rökvillur einnig yfir svonefndar óformlegar rökvillur en slík rök teljast rökvillur af öðrum ástæðum en vegna formlegs galla, t.d. vegna þess að þau eru ómálefnaleg.

Efnisyfirlit

[breyta] Dæmi um villu í röksemdafærslu

  1. Allir skunkar eru skvampar.
  2. Flestir skvampar ganga í nærbuxum.
  3. Þess vegna ganga einhverjir skunkar í nærbuxum.

Þetta kann að vera ruglingslegt í fyrstu, en ef lesið er rétt út úr þessu ætti að vera hægt að átta sig á því að ekki eru allir skvampar skunkar þótt svo að allir skúnkar séu skvampar, og því ekki öruggt að einhverjir skunkar gangi í nærbuxum. Niðurstaðan (skref 3) gæti hins vegar verið rétt en það leiðir ekki af forsendunum (skrefum 1 og 2) og þess vegna eru rökin ógild.

[breyta] Ýmsar tegundir af rökvillum

Eftirfarandi er listi yfir rökvillur. Vinna þarf nánar úr honum til að hann samræmist stöðlum á Wikipediu. Heimildir eru aðallega af Vantrú.is og ensku Wikipediu.

1. Vísun í kennivald (appeal to authority):

Þegar því er haldið fram að eitthvað sé satt vegna þess að tiltekin manneskja heldur því fram. Dæmi: Britney Spears notar Colgate tannkrem, því hlýtur Colgate að vera betra en önnur tannkrem. Vísun í kennivald er sérstök tegund af Vísun til uppruna (genetic fallacy) þar sem skoðun er dæmd eftir uppruna hennar. Dæmi: Samkynhneigð er slæm vegna þess að það stendur í Biblíunni.

2. Post hoc rökvillan (post hoc ergo propter hoc fallacy):

Það að halda að það A komi á eftir B sanni að A orsakist af B. Dæmi: Ég varð kvefuð og tók sólhatt. Tveimur vikum seinna var mér batnað af kvefinu. Þar af leiðandi hlýtur sólhatturinn að hafa læknað mig. Post hoc rökvillan er í raun dæmi um að fylgnisamband sé ekki endilega orsakasamband (correlation is not causation).

3. Fáfræðirökleiðslan (argument from ignorance):

Þegar haldið er fram að eitthvað geti ekki verið satt því það sé ekki búið að sanna það, eða að eitthvað geti ekki verið ósatt vegna þess að það sé ekki búið að hrekja það. Þetta er rökvilla því skortur á vitnisburði ber ekki vitni um neitt. Dæmi: Þú getur ekki sannað að Guð sé til. Þess vegna er hann ekki til eða Þú getur ekki afsannað að Guð sé til. Þess vegna hlýtur hann að vera til.

4. Klasavillan (cluster illusion):

Að halda að tilviljanakenndir atburðir sem gerast aftur og aftur séu í raun ekki tilviljanakenndir. Dæmi: Ég fékk sexu fimm sinnum í röð í spilinu. Ég hlýt að kasta teningnum svona frábærlega vel.

5. Persónuárásarvillan (ad hominem):

Þegar reynt er að gera lítið úr fullyrðingu með því að ráðast á persónu þess sem heldur henni fram. Dæmi: Hildur er á móti stríði en það er ekkert hægt að taka mark á henni, hún er bara barn og skilur ekki neitt.

6. Sök vegna tengsla:

Að segja að eitthvað sé rangt vegna tengsla við eitthvað slæmt, yfirleitt að slæmur maður hafi haldið því sama fram. Dæmi: Nasistar dýrkuðu skoðanir Friedrichs Nietzsches, þezs vegna hljóta þær að vera rangar og ógeðslegar.

8. Rökvilla brunnmígsins:

Að gera lítið úr skoðunum annars með því að draga fyrirfram úr sannfæringarmætti hans. Er skylt persónuárásarvillunni. Dæmi: Nú tekur til máls ofstækismaðurinn Gunnar í Krossinum.

9. Að gleyma undantekningunni (accident, destroying the exception):

Rökvilla þar sem aðeins er dregin ályktun út frá almennri reglu en undantekningarnar gleymast. Dæmi: Allir sem aka of hratt eru ökuníðingar. Lögreglan ekur yfir hraðamörkum. Þar af leiðandi hljóta lögreglumenn að vera ökuníðingar (lögreglubílar eru undanþegnir reglunni um hámarkshraða).

10. Að álykta út frá undantekningunni (converse accident):

Að draga almenna ályktun út frá undantekningu á reglu. Dæmi: Sumir misnota áfengi. Því ætti áfengi að vera bannað.

11. Óviðkomandi niðurstaða (ignoratio elenchi):

Þegar ályktanir leiða ekki af þeim rökum sem gefin voru og eru þeim í raun alveg óviðkomandi. Dæmi: Það er mikið að þessu þjóðfélagi. Þess vegna ættum við öll að fara að hugsa meira um siðferðismál.

12. Afvegaleiðing, „rauða síldin“, „gulrótin“ (red herring):

Er sértilfelli af óviðkomandi niðurstöðu, þar sem reynt er að afvegaleiða fólk viljandi, veifa svo að segja gulrót fyrir framan nefið á þeim. Dæmi: Við höfum kannski ekki staðið við loforð um skattalækkanir en sjáiði bara formann hins flokksins! Ég hef staðfestar heimildir um að hann gangi í kvenmannsnærfötum!

13. Hringavitleysan (begging the question):

Þegar einhverju er haldið fram, ályktun er dregin af því og ályktunin svo notuð til að styðja upprunalegu forsenduna. Dæmi: Styrkir er það sem styrkir hegðun (þetta er allavega mjög nálægt því að falla undir hringavitleysu).

[breyta] Sjá einnig

[breyta] Aðrar rökvillur

[breyta] Gildar ályktunarreglur


Þessi grein sem fjallar um heimspekilegt efni er stubbur.
Þú getur hjálpað til með því að bæta við hana

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com