Perseifur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Perseifur, Perseos eða Perseas (forngríska Περσεύς, Περσέως, Περσέας) var goðsagnakenndur stofnandi Mýkenu og veldis Perseifsniðja þar. Hann var sonur Danáu, dóttur Akrisíosar konungs í Argos. Hann giftist konungsdótturinni Andrómedu. Perseifur var hetjan sem drap Medúsu en úr blóði Medúsu varð til vængjaði hesturinn Pegasos.