Nauðhyggja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nauðhyggja er sú heimspekilega kenning að allt sem gerist, þar með taldar mannlegar athafnir, ráðist af undanfarandi orsökum. Samkvæmt kenningunni eru engar tilviljanir. Kenningin vekur upp spurningar um frelsi viljans. Samkvæmt svokallaðri „harðri nauðhyggju“ er frelsi viljans tálsýn en þeir sem aðhyllast svokallaða „mjúka nauðhyggju“ telja að frjáls vilji sé samrýmanlegur nauðhyggju.
[breyta] Heimildir og ítarefni
- Atli Harðarson, „Frjáls vilji”, Afarkostir, (Háskólaútgáfan: Reykjavík, 1995).
- Atli Harðarson, „Vélin maður”, Afarkostir, (Háskólaútgáfan: Reykjavík, 1995).
- Bobzien, Susanne, Determinism and Freedom in Stoic Philosophy (Oxford: Oxford University Press, 1998).
[breyta] Tengt efni
- Frelsi viljans
- Rökfræðileg nauðhyggja
- Vélhyggja
- Þekkingarfræðileg nauðhyggja
- Örlagahyggja
[breyta] Tenglar
- Á Stanford Encyclopedia of Philosophy:
- Vísindavefurinn: „Berum við ábyrgð á eigin gerðum ef hægt er að spá fyrir um þær?“