Ebooks, Audobooks and Classical Music from Liber Liber
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z





Web - Amazon

We provide Linux to the World


We support WINRAR [What is this] - [Download .exe file(s) for Windows]

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
SITEMAP
Audiobooks by Valerio Di Stefano: Single Download - Complete Download [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Alphabetical Download  [TAR] [WIM] [ZIP] [RAR] - Download Instructions

Make a donation: IBAN: IT36M0708677020000000008016 - BIC/SWIFT:  ICRAITRRU60 - VALERIO DI STEFANO or
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Hippías meiri (Platon) - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Hippías meiri (Platon)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Þessi grein fjallar um
samræður eftir Platon
1. fjórleikur:
Evþýfron
Málsvörn Sókratesar
Kríton – Fædon
2. fjórleikur:
Kratýlos - Þeætetos
Fræðarinn
Stjórnvitringurinn
3. fjórleikur:
Parmenídes – Fílebos
Samdrykkjan – Fædros
4. fjórleikur:
Alkibíades I - Alkibíades II
Hipparkos - Elskendurnir
5. fjórleikur:
Þeages - Karmídes
Lakkes – Lýsis
6. fjórleikur:
Evþýdemos - Prótagóras
Gorgías – Menon
7. fjórleikur:
Hippías meiri - Hippías minni
Jón - Menexenos
8. fjórleikur:
Kleitofon - Ríkið
Tímajos – Krítías
9. fjórleikur:
Mínos - Lögin
Epinomis – Bréf
Verk utan fjórleikja:
(Almennt talin ranglega eignuð Platoni
að eftirmælunum undanskildum)
Skilgreiningar - Um réttlætið
Um dygðina - Demodókos - Sísýfos
Halcyon - Eryxías - Axíokkos
Eftirmæli

Hippías meiri (eða Um fegurðina) er samræða eftir forngríska heimspekinginn Platon. Hún er meðal elstu samræðanna, samin á yngri árum höfundar. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær samræðan var samin en fræðimenn giska á að hún hafi verið samin um 390 f.Kr.

Samræðan er nefnd eftir fræðaranum Hippíasi frá Elís sem er viðmælandi Sókratesar í samræðunni.

Efnisyfirlit

[breyta] Efni samræðunnar

Í Hippíasi meiri freista þeir Hippías og Sókrates þess að skilgreina fegurðina en hafa ekki erindi sem erfiði því þeir geta ekki fundið skilgreiningu sem nær yfir hugtakið allt.

[breyta] Inngangur

[breyta] Hippías hittir Sókrates

Hippías, sem hefur verið lengi í burtu frá Aþenu, kemur til borgarinnar til að halda fyrirlestra í skóla Feidostratosar. Hann hittir Sókrates sem spyr hann hvers vegna svo vitur og mætur maður sem Hippías hafi ekki leyft Aþeningum að njóta nærveru sinnar svo lengi.

Fræðarinn útskýrir að heimaborg hans, Elís, hafi þurft á honum að halda og að honum hafi verið fldar ýmsar opinberar sendiferðir til annarra borga, m.a. Spörtu. Hann nýtti ferðina til að uppfræða ungt fólk víða um Grikkland og hafi þénað vel.

Talið berst að fegurð og Sókrates segist hafa sætt ámælum frá kunningja nokkru áður fyrir að kunna ekki að skilgreina fegurð. Hann er því feginn að svo mætur maður sem Hippías geti nú hjálpað honum að komast til botns í málinu.

[breyta] Skilgreiningar Hippíasar

Hippías gerir þrjár tilraunir til að skilgreina fegurð:

  1. „Fegurð er fögur stúlka“

Hippías hefur gefið dæmi um fegurð í stað þess að skilgreina hana. „Skilgreiningunni“ er hafnað af því að það er til heilmargt fagurt auk fallegra stúlkna.

  1. „Fegurð er gull“

Gull, segir Hippías, gerir allt fallegra. En Sókrates bendir á að þá sé erfitt að sjá hvað sé fallegt við styttu Feidíasar af Aþenu sem stendur í Meyjarhofinu, því hún er að mestu úr fílabeini.

  1. „Fegurð er að vera ríkur og virtur“

Hippías bætir við að fegurðin sé einnig að vera við góða heilsu og ná háum aldri, að jarða foreldra sína með vegsemd og vera jarðaður á sama hátt af afkomendum sínum. En hvað, spyr Sókrates, um Akkilles og Herakles? Var engin fegurð í þeirra lífi af því að þeir lifðu ekki foreldra sína og voru ekki jarðaðir af afkomendum sínum?

Skilgreiningarnar eru allar ræddar en niðurstaðan er sú að þær séu allar rangar.

[breyta] Tilraunir Sókratesar

Sókrates reynir nú að skilgreina fegurðina þrisvar sinnum:

  1. „Fegurð er það sem er viðeigandi“

Hippías er ánægður með þessa tilraun. En við nánari skoðun komast þeir að því að það sem er viðeigandi getur bæði verið fagurt og veitt einungis ásýnd fegurðar, líkt og þegar ljótur maður er settur í fín föt og klæddur upp.

  1. „Fegurð er það sem er nytsamlegt“

Nú leggur Sókrates til að fegurðin sé nytsamleg eða gagnleg. En hlutir geta gagnast til góðra verka og slæmra og fegurð er bersýnilega ekki það sem gagnast til slæmra verka.

  1. „Fegurð er ánægjan sem hlýst af því að sjá og heyra“

Að lokum leggur Sókrates til að fegurðin sé það sem gleður okkur þegar við sjáum það. En gallinn sem Sókrates sér við uppástunguna er sá að skilgreiningin tekur ekki tillit til fegurðarinnar sem veitir æðri ánægju, eins og t.d. laganám eða annað nám.

[breyta] Niðurstaða

Þeir Sókrates og Hippías þreytast þegar niðurstaðan er enn á sömu leið: Engin skilgreininganna er rétt eða fullnægjandi. Þeir gefast því upp en Sókrates segist nú skilja betur gríska málsháttinn að „fagrir hlutir séu erfiðir“.

[breyta] Tenglar


Þessi grein sem fjallar um fornfræðilegt efni er stubbur.
Þú getur hjálpað til með því að bæta við hana

Our "Network":

Project Gutenberg
https://gutenberg.classicistranieri.com

Encyclopaedia Britannica 1911
https://encyclopaediabritannica.classicistranieri.com

Librivox Audiobooks
https://librivox.classicistranieri.com

Linux Distributions
https://old.classicistranieri.com

Magnatune (MP3 Music)
https://magnatune.classicistranieri.com

Static Wikipedia (June 2008)
https://wikipedia.classicistranieri.com

Static Wikipedia (March 2008)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com/mar2008/

Static Wikipedia (2007)
https://wikipedia2007.classicistranieri.com

Static Wikipedia (2006)
https://wikipedia2006.classicistranieri.com

Liber Liber
https://liberliber.classicistranieri.com

ZIM Files for Kiwix
https://zim.classicistranieri.com


Other Websites:

Bach - Goldberg Variations
https://www.goldbergvariations.org

Lazarillo de Tormes
https://www.lazarillodetormes.org

Madame Bovary
https://www.madamebovary.org

Il Fu Mattia Pascal
https://www.mattiapascal.it

The Voice in the Desert
https://www.thevoiceinthedesert.org

Confessione d'un amore fascista
https://www.amorefascista.it

Malinverno
https://www.malinverno.org

Debito formativo
https://www.debitoformativo.it

Adina Spire
https://www.adinaspire.com