Danskir ríkisdalir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ríkisdalir voru gjaldmiðill í Danaveldi fram til upphafs 20. aldar. 1 ríkisdalur (rigsdaler) = 6 mörk (marck) = 96 skildinga (skilling). Sá gjaldmiðill var kjarninn í tveimur peningakerfum - annarsvegar specie-kerfinu og kúrant-kerfinu. Specie-kerfið byggðist upp á því að 1 skilling jafngilti 263mg (1/1000 úr unsu) af fínhreinsuðu silfri, og hélst sú skilgreining skillings út allt tímabilið. Eingöngu lítil fjárupphæð var skilgreind í specie-kerfinu, en kúrant-kerfið var notað dags-daglega í verðlagningu og vinnulaunum.
Heimildir benda til þess að specie kerfið hafi verið bundið við þýsk Reichsthaler, en ekki er ljóst hve lengi slík binding var í gildi.
[breyta] Kúrant-kerfið
Kerfið dregur nafn sitt af enska orðinu currency, en hugtakið var tekið í notkun í Bretlandi til þess að lýsa því hvernig gjaldmiðill gat tekið verðbreytingum eftir stöðu viðskipta í landinu, í stað þess að vera föst skilgreind upphæð. Líkingin var við það hvernig í stórum ám eins og Thames ánni í London var mismunandi mikið flæði eftir því hvar í ánni menn voru staðsettir, eða að gjaldmiðlar hefðu mismunandi verðgildi eftir flæði hvers tíma.
Í upphafi hafði kúrant-kerfið staðlaða mynt þar sem að hver skilling innihélt 215mg (3/4 úr specie-skillingi) af fínhreinsuðu silfri. Frá og með árinu 1737 voru gefnir út peningaseðlar í þessu gjaldkerfi sem að voru loforð um tiltekið magn silfurs gegn framvísun í banka, en frá og með árunum 1745-1747 var ekki lengur hægt að krefja bankanna um silfrið sem peningaseðlarnir vísuðu á, og árið 1757 var tengslum bréfseðlanna við silfur rofið. Frá og með árinu 1788 var nánast engin silfurmynt slegin í kúrant-kerfinu, og upp frá því fór kerfið að flæða eins og aðrir óverðtryggðir gjaldmiðlar þess tíma.
Í kúrant kerfinu voru önnur hlutföll á verði peninga, og þá kom króna fyrst til sögunnar. 1 krone = 1 sletdaler = 4 marck. 1 daler = 2 marck. 1 rigsort = 1½ marck = 24 skilling. 1 marck = 16 skilling.
[breyta] Dæmi um verðlag
Hið Íslenska Verslunarfélag verslaði alls með um í kringum 20.000rd árlega, en félagið var stofnað með hlutafé upp á 100.000rd. Árslaun héraðslæknis voru almennt á bilinu 600rd til 1500rd eftir héröðum, en landlæknir var með í kringum 2000 ríkisdali í laun eftir að embættið var sett á laggirnar 18. mars 1760
Árið 1694 var arður af verslun í Vestmannaeyjum talin vera 1494rd, en skuldir voru almennt fremur litlar á einokunarárunum. Árið 1755 voru útistandandi verslunarskuldir í þar um 1700rd, en eftir 1770 var mjög slæmt hallæri á fiskimiðunum sem að varð til þess að við lok einokunartímabilsins 1783 voru skuldir í Vestmannaeyjum samtals 5892rd, á móti eftirstöðvum jarðarbókartekna 1138rd, og voru fyrstu árin eftir lok einokunarverslunarinnar mjög erfið.
[breyta] Heimildir
- Ríkisdalir (ritgerð), Smári P. McCarthy; febrúar 2005.
- Saga Landlæknisembættisins
- Saga Vestmannaeyja, Sigfús M. Johnssen; Reykjavík 1946; bls 205-210.
- The Standard of Living in Copenhagen 1730-1800, Thestrup, Poul; Copenhagen 1971; bls 123; ISBN 87-505-0145-3.
- Síða Pierre Marteau danska mynt (Inniheldur m.a. alþjóðlegar gengistöflur fyrir 18. öld, og myndir af öllum myntum)