Stjörnufræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stjörnufræði (eða stjörnuvísindi) er undirgrein náttúruvísindanna sem fæst við rannsóknir á heiminum utan lofthjúps jarðar. Þeir sem leggja stund á greinina kallast stjörnufræðingar (eða stjarnvísindamenn).
Í stjörnufræði er rannsakaður uppruni og þróun, sem og efnis- og eðlisfræðilegir eiginleikar, hluta sem hægt er að fylgjast með fyrir utan lofthjúp jarðar.
Ólíkt flestum öðrum vísindagreinum eru áhugamenn enn snar þáttur í stjörnufræði nútímans, aðallega við að uppgvöta og fylgjast með fyrirbærum. Stjörnufræði er oft ruglað saman við stjörnuspeki en þessar tvær greinar eru þó gjörólíkar þar sem stjörnufræði er vísindagrein þar sem notast er við vísindalega aðferð en það gera stjörnuspekingar ekki.
[breyta] Undirgreinar
- Stjörnumerkjafræði
- Stjarneðlisfræði
- Heimsfræði eða heimsmyndunarfræði
[breyta] Viðfangsefni stjörnufræðinnar
- Sólkerfið
- Líf á öðrum hnöttum
- Fastastjörnur
- Miklihvellur
- Stjörnuþokur