Siðferði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Siðferði er grundvallarreglur og -gildi sem varða þær athafnir og þá breytni sem hefur áhrif á aðra.
Með öðrum orðum: „Siðferði felur í sér þá lágmarkskröfu að menn leitist við að haga breytni sinni í samræmi við skynsemi — það er að segja að gera það sem hin bestu rök styðja að gert sé — um leið og jafnt tillit er tekið til hagsmuna sérhvers einstaklings sem athafnir manns snerta.“[1]
Menningarmannfræði er sú fræðigrein sem rannsakar viðtekið siðferði í hinum ýmsu samfélögum en siðfræði er undirgrein heimspekinnar sem leitar réttlætingar fyrir siðferði yfirleitt og reynir að skýra í hverju siðferðið er fólgið óháð því hvernig það er upplifað í ólíkum samfélögum og menningarheimum.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Tilvísanir
- ↑ Rachels (1997).
[breyta] Heimildir
Rachels, James. 1997. Stefnur og straumar í siðfræði. Jón Á. Kalmansson íslenskaði. (Reykjavík, Háskóli Íslands).