Reinhard Heydrich
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Reinhard Tristan Eugen Heydrich (7. mars 1904 – 2. júní 1942) var SS-Obergruppenführer, yfirmaður öryggisþjónustu þriðja ríkisins (sem m.a. innihélt Gestapo, SD og Kripo-nasískar lögregludeildir). Adolf Hitler taldi hann mögulegan eftirmann sinn. Hann var uppnefndur 'Slátrarinn af Prag' og 'Der Henker' (þýska fyrir böðul).
Heydrich var einn af höfundum helfararinnar og gestgjafi Wannsee-ráðstefnunnar 1942, þar sem tekin var ákvörðun um útrýmingu allra gyðinga í Evrópu. Hann var særður af tékkneskum andspyrnumönnum í Prag og lést síðar af þeim sárum sem hann hlaut við það.