Reikistjarna
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Reikistjarna (eða pláneta) er í almennu tali hugtak notað um stóran kúlulaga hlut á sporbaug um stjörnu, sem er ekki stjarna sjálfur. Hugtakið hefur þó enga nákvæma vísindalega skilgreiningu og eru deilur um hvernig það skuli skilgreint.
Alþjóðasamband stjarnfræðinga hefur nú á skrá 8 reikistjörnur í sólkerfinu, valið er byggt á sögulegum ástæðum. Þar sem hugtakið reikistjarna hefur enga vísindalega skilgreiningu hefur fjöldi reikistjarna í sólkerfinu orðið deilumál. Flestir hafa talið þær vera 9, en nú hafa stjarnfræðingar ákveðið að taka Plútó af skrá og eru reikistjörnurnar því einni færri en áður.
Efnisyfirlit |
[breyta] Nafnsifjar orðsins „reikistjarna“
- Elsta dæmið sem nú er í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans um orðið 'reikistjarna' er úr Almennri landaskipunarfræði I-II eftir Gunnlaug Oddsson og fleiri frá 1821-1827 (bls. 66-67). Þar og í öðrum dæmum frá 19. öld er orðið haft í sömu merkingu og hér er lýst, þannig að það hefur líklega aldrei verið notað í merkingunni 'föruhnöttur'.[1]
Orðið reikistjarna er stundum ekki notað sem algjört samheiti plánetu (e. planet):
- Í vönduðum enskum orðabókum er gerður greinarmunur á tveimur aðalmerkingum í orðinu 'planet' (Stein, 1975). Annars vegar merkir það sama og 'reikistjarna' eins og merkingu þess orðs er lýst hér á undan, en hins vegar getur það þýtt ´lýsandi hnöttur sem sést með berum augum og hreyfist miðað við fastastjörnur'. Í síðari merkingunni hefur orðið stundum verið þýtt sem 'föruhnöttur', en þessir hnettir eru sjö: tunglið, sólin, Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter og Satúrnus (Sören Sörenson 1986; Þorsteinn Vilhjálmsson 1986-7).[2]
Í dag er orðið „planet“ í ensku venjulega ekki notað um sólstjörnur eða hnetti sem hafa ekki sporbaug um sólstjörnu. Þ.a.l. myndi enginn telja tunglið eða sólina til plánetu í dag.
[breyta] Nafnsifjar orðsins „pláneta“
Orðið pláneta er ættað af gríska orðinu πλανήτης (umritað: planētēs) sem þýðir flakkari.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimildir
- Svar við „Hvernig eru plánetur og reikistjörnur skilgreindar?“ á Vísindavefnum. Sótt 2. október 2005.
- Greinin „Planet“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. október 2005.