Nýja Suður Wales
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nýja Suður-Wales er eitt sex fylkja í Ástralíu. Höfuðborg þess er Sydney. Nýja Suður-Wales var upphaflega stofnað sem fyrsta nýlenda Breta í Ástralíu, 1788 og náði þá frá austurströndinni þangað sem í dag er Vestur-Ástralía. Síðan voru smámsaman af henni tekin landsvæði sem mynduðu Victoriu, Suður-Ástralíu, Queensland og Tasmaníu. Enn síðar, við stofnun Samveldisins Ástralíu 1901 var svæðið fyrir Höfuðborgarsvæði Ástralíu tekið úr fylkinu og þar stofnuð höfuðborgin Canberra. Í dag er það fjölmennasta fylkið og helsta miðstöð bæði menningar- og efnahagslífs Ástralíu.
Áströlsk fylki, svæði og höfuðborgir: | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæði Ástralíu | Nýja Suður Wales | Norður-svæðið | Queensland | Suður-Ástralía | Tasmanía | Victoria | Vestur-Ástralía | |
Canberra | Sydney | Darwin | Brisbane | Adelaide | Hobart | Melbourne | Perth | |
Norfolkeyja | Jólaeyja | Kókoseyjar | Kóralhafseyjasvæðið | Heard- og McDonaldeyjar | Ástralska suðurskautssvæðið |