Minho
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Áin Minho er lengsta á Galíseu, Spáni eða 340 kílómetra löng.
Áin kallast Minho á portúgölsku en Miño á spænsku og koma bæði nöfnin frá latneska orðinu Minius. Minho er notuð til að vökva vínekrur og ræktarlönd, keyra orkuver og sem náttúruleg aðgreining milli Spáns og Portúgals á um 80 kílómetra svæði.
Uppspretta árinnar er um 50 kílómetra norður af Lugo í Galíseu.