Hryðjuverkin 11. september 2001
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hryðjuverkin 11. september 2001 voru hryðjuverkaárásir, skipulagðar og framkvæmdar af Al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, sem gerðar voru þriðjudaginn 11. september 2001 og beindust gegn Bandaríkjunum. Þann dag var fjórum farþegaþotum rænt á flugi yfir austurstönd Bandaríkjanna, tveimur þeirra flogið á World Trade Center tvíburaturnana í New York, einni flogið á Pentagon-bygginguna í Arlington-sýslu í Virginíu og ein hrapaði í Somerset-sýslu í Pennsylvaníu eftir baráttu farþega og flugliða við hryðjuverkamennina um borð.
Báðir turnar World Trade Center hrundu til grunna og miklar skemmdir urðu bæði á nærliggjandi byggingum og á Pentagon. Auk hryðjuverkamannanna 19 létu 2973 lífið í árásunum. Árásirnar höfðu mikil áhrif á alþjóðasamfélagið. Eftir þær hófu Bandaríkjamenn stríðið gegn hryðjuverkum, réðust inn í Afganistan og steyptu þar talíbanastjórninni úr stóli og tveimur árum seinna í Írak.