Geir Hallgrímsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Geir Hallgrímsson (f. í Reykjavík 16. desember 1925, dó í Reykjavík 1. september 1990) var íslenskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra.
Hann var sonur Hallgríms Benediktssonar, stórkaupmanns og alþingismanns, og Áslaugar Geirsdóttur Zoëga. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1944 og lagaprófi frá Háskóla Íslands 1948. Á háskólaárunum var hann formaður Stúdentaráðs. Hann var formaður Heimdallar 1952-1954 og Sambands ungra sjálfstæðismanna 1957-1959. Hann stundaði síðan framhaldsnám í lögfræði og hagfræði við Harvard-háskóla.
Geir rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík 1951-1959 og var jafnframt forstjóri H. Benediktsson & Co. 1955-1959.
Geir var borgarstjóri í Reykjavík frá 19. nóvember 1959 til 1. desember 1972, fyrst með Auði Auðuns en einn frá 6. október 1960. Hann var kjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi 1971 og endurkjörinn 1973 en varð formaður flokksins haustið 1973 er Jóhann Hafstein varð að draga sig í hlé af heilsufarsástæðum. Meðan Geir sat sem borgarstjóri voru verklegar framkvæmdir miklar, t.d. voru vel flestar götur Reykjavíkur malbikaðar í borgastjóra tíð hans.
Geir var kjörinn þingmaður Reykvíkinga 1971 og varð forsætisráðherra 28. ágúst 1974 og gegndi þeirri stöðu fram til 1978. Hann var þingmaður til 1983. Það ár lét hann af formennsku Sjálfstæðisflokksins. Hann var utanríkisráðherra 1983-1986 en gengdi frá því bankastjóra stöðu í Seðlabankanum til dauðadags 1. september 1990.
Fyrirrennari: Ásgeir Pétursson |
|
Eftirmaður: Þór Vilhjálmsson |
|||
Fyrirrennari: Gunnar Thoroddsen |
|
Eftirmaður: Birgir Ísleifur Gunnarsson |
|||
Fyrirrennari: Jóhann Hafstein |
|
Eftirmaður: Magnús Jónsson frá Mel |
|||
Fyrirrennari: Jóhann Hafstein |
|
Eftirmaður: Þorsteinn Pálsson |
|||
Fyrirrennari: Ólafur Jóhannesson |
|
Eftirmaður: Ólafur Jóhannesson |
|||
Fyrirrennari: Ólafur Jóhannesson |
|
Eftirmaður: Matthías Á. Mathiesen |
[breyta] Heimildir
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Sjálfstæðisflokkurinn í sextíu ár. Sjálfstæðisflokkurinn, 1989.