Menntaskólinn í Reykjavík
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Menntaskólinn í Reykjavík (latína: Schola Reykjavicensis) er framhaldsskóli í miðbæ Reykjavíkur. Hann á sér langa sögu og hafa margir þekktir Íslendingar haft þar viðkomu í gegnum tíðina. Skólinn er bóknámsskóli með bekkjakerfi og býður upp á fjögurra ára nám til stúdentsprófs. Við hann eru tvær meginbrautir, náttúrufræðibraut og málabraut, sem greinast í samtals átta deildir.
Efnisyfirlit |
Saga
Menntaskólinn í Reykjavík er elsta íslenska menntastofnunin. Hann á rætur sínar að rekja til ársins 1056 en hefur ekki alltaf verið á þeim stað sem hann er í dag.
Skálholtsskóli (1056 - 1784)
Um Ísleif Gissurarson segir Hungurvaka eftirfarandi:
- En er það sáu höfðingjar landsins og aðrir góðir menn að Ísleifur var
- miklu nýtri en aðrir kennimenn, þeir er á þvísa landi næði, þá seldu
- honum margir sonu sína til lærlinga og létu vígja til presta.
Þetta er elsta varðveitta frásögn af skólahaldi hér á landi. Hefð hefur skapast fyrir því að miða upphaf skólans við árið sem Ísleifur var vígður 1056. Þó er vitað hann sneri ekki heim úr vígsluför sinni til Brima fyrr en árið 1057 og sat á biskupsstól til ársins 1080, þannig að kennsla hans gæti hafa hafist á hvaða ári sem er þar á milli, heimildir eru ekki nákvæmari en svo.
Skálholtsskóli var, ásamt Hólaskóla og klausturskólum helsta menntastofnun landsins til siðaskipta, en með konungsboði 1552 var biskupsstólunum íslensku gert skylt að reka skóla, fyrst og fremst í því skyni að mennta lúthersk prestsefni.
Í Suðurlandsskjálftanum um sumarið 1784 hrundu öll hús í Skálholti nema dómkirkjan. Á sama tíma voru móðuharðindin og búfé staðarins var þá næstum allt fallið úr hor og nærri má geta að landsetar af jörðum biskupsstólsins hafa ekki getað staðið í skilum með afgjöld af jörðum og leigubúfé. Biskupinn, Finnur Jónsson, hélt þó til í Skálholti um veturinn með þjónustufólki sínu, en skólahald féll niður. Með því var skólinn fluttur til Reykjavíkur.
Hólavallarskóli (1786-1805)
Árið 1785 var ákveðið að leggja niður Skálholtsstól, flytja biskupsembættið og skólann til Reykjavíkur og setja kennara skólans á föst laun úr ríkissjóði. Á næsta ári var hróflað upp skólahúsi á Hólavelli við Reykjavík, þar sem nú má finna Hólavallagötu. Árið 1801 var ákveðið að leggja Hólastól niður og sameina skólann sem þar var Hólavallarskóla, sem þá varð eini skólinn á landinu. Skólinn var í timburhúsi sem hélt hvorki vindi né vatni. Því var ákveðið árið 1805 að flytja skólann að Bessastöðum.
Bessastaðaskóli (1805-1846)
Árið 1805 var það ráð tekið að flytja skólann að Bessastöðum, í Bessastaðastofu, steinhús sem hafði verið reist til að hýsa amtmann og síðar stiftamtmann um 1760. Þáverandi stiftamtmaður, Ólafur Stephensen, bjó ekki á Bessastöðum og nýr amtmaður, F.C. Trampe, gaf Bessastaði eftir til skólahalds. Skólinn starfaði til ársins 1846 en var þá fluttur aftur til Reykjavíkur, í nýtt hús, vígt haustið 1846.
Lækjargata 7 (1846-)
Eftir að skólinn var fluttur frá Bessastöðum og fram til 1904 nefndist hann Reykjavíkur lærði skóli en var í daglegu tali kallaður Reykjavíkurskóli, Lærði skólinn eða Latínuskólinn.
Árið 1904 var áherslum í námsefni skólans breytt verulega. Latínukennsla var minnkuð til muna og grískukennslu hætt í því formi sem verið hafði. Í samræmi við það var nafni skólans breytt og nefndist hann þá Hinn almenni Menntaskóli í Reykjavík. Frá 1937 hefur skólinn borið heitið Menntaskólinn í Reykjavík.
Menntaskólinn í Reykjavík er kunnur fyrir frammistöðu sína í spurningakeppninni Gettu Betur, þar sem hann hefur unnið samtals 13 sinnum. Samfelld sigurganga í þeirri keppni stóð frá 1993 til 2004. Fjórum sinnum hafa lið skólans unnið í mælskukeppninni Morfís.
Breytingar á skólanum
Frá og með árinu 1949 var gagnfræðadeild skólans lögð niður, og eftir það skiptist skólinn aðeins í fjóra árganga í stað sex, eins og hafði verið frá 1904. Þó hélst sú hefð að kalla síðasta bekk skólans 6. bekk og byrja því nýnemar í 3. bekk.
Konur í skólanum
Stúlkur höfðu ekki aðgang að skólanum fyrr en 1904, en máttu taka próf frá árinu 1886. Ólafía Jóhannsdóttir lauk 4. bekkjar prófi utanskóla árið 1890. Laufey Valdimarsdóttir, dóttir Bríetar Bjarnhéðinsdóttur settist á skólabekk í skólanum fyrst kvenna haustið 1904 og lauk stúdentsprófi frá honum 1910. Áður hafði ein stúlka tekið stúdentspróf utanskóla, Elínborg Jacobsen. Camilla Torfason lauk stúdentsprófi í Kaupmannahöfn 1889 og Björg Karitas Þorláksdóttir 1901, en í Danmörku fengu stúlkur aðgang að æðri menntastofnunum þegar árið 1875. Stúlkur voru í minnihluta stúdenta fram til 1970 en eftir 1979 hafa þær verið í meirihluta. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands 1980-1996, var nemandi og síðar kennari við skólann. Fyrsta konan til að gegna embætti rektors MR var Ragnheiður Torfadóttir, 1996-2001.
Námsframboð
Menntaskólinn í Reykjavík er hefðbundinn bóknámsskóli sem býður upp á fjögurra ára nám til stúdentsprófs. Skólinn er bekkjaskóli með bekkjakerfi og hefur fylgt þeirri skipan frá stofnun. Nemendum 6. bekkjar gefst nokkur kostur á valfögum innan vissra námsdeilda.
Námsbrautirnar eru:
- Málabraut
- Fornmáladeild I
- Fornmáladeild II
- Nýmáladeild I
- Nýmáladeild II
- Náttúrufræðibraut
- Eðlisfræðideild I
- Eðlisfræðideild II
- Náttúrufræðideild I
- Náttúrufræðideild II
Á fyrsta ári velja allir sér námsbraut og velja síðan námsdeild í lok annars ársins. Boðið er upp á valfög í II-deildunum.
Félagslíf
Félagslíf í Menntaskólanum í Reykjavík er óvenjulegt að því leyti að þar starfa tvö nemendafélög, Skólafélagið og Framtíðin. Þetta fyrirkomulag á rætur sínar að rekja til laga sem sett voru árið 1963. Úr því að Framtíðin tók ekki við nemum á fyrsta ári varð að stofna nýtt nemandafélag, Skólafélag Menntaskólans í Reykjavík. Innan vébanda þeirra er blómlegt félagslíf þar sem lögð er stund á leiklist (leikfélagið Herranótt), mælskulist, myndlist, danslist, skák, bókmenntir, kórsöng og fleira.
Byggingar
Menntaskólinn í Reykjavík er í níu byggingum á litlum reit sem markast af Lækjargötu, Amtmannsstíg, Þingholtsstræti og Bókhlöðustíg. Húsin eru þessi:
Skólahúsið
Skólahúsið að Lækjargötu 7, betur þekkt sem Gamli skóli í daglegu tali nemenda, er elsta hús skólans, reist 1846. Það var á þeim tíma stærsta hús landsins. Á jarðhæð er að finna kennslustofur A, B, C, D, E, F, O og L. Á annarri hæð eru kennslustofur G, H, T, I, hátíðasalurinn og kennarastofa. Á þriðju hæð er skrifstofa skólans og rektors, bókasalan og skrifstofur kennara. Húsið er 1524 fermetrar.
Íþaka
Íþaka er bygging, sem hýsir bókasafn skólans. Enski kaupmaðurinn Charles Kelsall ánafnaði Latínuskólanum í Reykjavík þúsund sterlingspundum í erfðaskrá sinni árið 1853 vegna þess hve mjög hann hreifst af því að Íslendingar skyldu geta haldið uppi sjálfstæðu menningarlífi, þrátt fyrir að vera fámenn þjóð og fátæk. Peninginn skyldi nota til þess að reisa skólanum bókhlöðu. Danskur timburmeistari að nafni Klentz teiknaði húsið og danskir iðnaðarmenn byggðu það árin 1866-1867. Húsið er nefnt eftir bænum Ithaca í New York-fylki í Bandaríkjunum, en það var heimabær Willards Fiske, prófessors við Cornell-háskóla. Fiske, sem kom til Íslands árið 1879, hafði beitt sér fyrir stofnun nýs lestrarfélags nemenda og kennara. Lestarfélagið Íþaka var síðar nefnt bókasafnið Íþaka. Á neðri hæð hússins er lestrarsalur nemenda en á þeirri efri er bókasafn skólans. Húsið er 259 fermetrar.
Fjósið
Var upprunalega fjós reist árið 1850. Húsið er timburhús sem er 123 fermetrar. Byggt var við húsið 1945. Nú á dögum hýsir Fjósið stofur K og M.
Íþróttahöllin
Íþróttaaðstaða skólans, er byggt árið 1898. Árin 1901 og 1944 var byggt við það. Íþróttahöllin er sögð vera vagga handboltans hér á landi. Þegar nýtt íþróttahús rís mun það gamla hýsa bókasafn. Í kjallara Íþróttahallarinnar er kraftlyftingasalurinn Þrælakistan. Íþróttahúsið er 123 fermetrar og Þrælakistan 41.
Casa Christi
Byrjað var að byggja húsið árið 1906 og var það vígt á skírdag 1907. Upphaflega var það reist undir höfuðstöðvar KFUM og K en þangað flutti félagið úr Melsteðshúsi við Lækjartorg. Nú eru höfuðstöðvar þess við Holtaveg. Menntaskólinn á núna allt húsið sem hýsir kennslustofur 1-10 auk kennarastofu. Húsið er 856 fermetrar.
Casa nova
Framkvæmdir hófust í júlí 1963 og var húsið tekið í notkun 1. október 1964. Nú hýsir það kennslustofur C101-C253 og margmiðlunarver. Félagsaðstaða nemenda er í kjallaranum og kallast Kösukjallari eða Kasa í daglegu tali nemenda. Þar eru tvær búðir, Kakóland sem selur matar- og drykkjarföng og verslunarbústaðurinn Guðjón sem selur nammi. Húsið er á þremur hæðum og er 1469 fermetrar.
Villa nova
Byggt árið 1901 og endurbætt árið 1963. Þar er aðstaða húsvarðar og nemendaráðgjöf. Hýsti skrifstofur nemendafélaganna þangað til haustið 2004. Húsið er 170 fermetrar.
Elísabetarhús
Húsið er byggt árið 1968. Árið 1996 tilkynnti Davíð S. Jónsson, að hann hefði ákveðið að gefa skólanum húsið að Þingholtsstræti 18 til minningar um konu sína Elísabetu Sveinsdóttur. Var húsið tekið í notkun í ársbyrjun 1999. Ragnheiður Torfadóttir fyrrverandi rektor Menntaskólans ákvað að húsið skyldi heita Minni Elísabetar, en það nafn náði ekki fótfestu og er opinbert nafn þess nú Elísabetarhús. Margir nemendur líta þó ekki á húsið sem sérstakt hús en það er tengt Casa Nova með tengibyggingu sem var byggð í tengslum við að húsið var tekið í notkun. Það hýsir verklegar kennslustofur, tölvuver nemenda og skrifstofur kennara. Húsið er 1147 fermetrar.
Amtmannsstígur 2
Amtmannsstígur 2 er timburhús byggt árið 1906. Á efri hæðum eru skrifstofur kennara, en kjallarinn hýsir skrifstofur Skólafélagsins og Framtíðarinnar. Húsið er 434 fermetrar.
Þekktir nemendur
- Fyrir nákvæmari lista yfir þekkta nemendur skólans má sjá þekkta nemendur Menntaskólans í Reykjavík
Tveir menn sem síðar hlutu Nóbelsverðlaun hafa gengið í Menntaskólann í Reykjavík, Halldór Laxness og Niels Ryberg Finsen. Fjölmargir þjóðkunnir einstaklingar hafa gengið í skólann og gegnt þar æðstu stöðum innan skólafélaganna. Má þar nefna Davíð Oddsson og Geir H. Haarde, sem gegndu stöðu inspectors scholae, og Ásgeir Ásgeirsson og Ólaf Ragnar Grímsson, sem voru forsetar Framtíðarinnar.
Rektoratal frá 1846
1846-1851: Sveinbjörn Egilsson
1851-1867: Bjarni Jónsson
1867-1872: Jens Sigurðsson
1872-1895: Jón Þorkelsson
1895-1904: Björn M. Ólsen
1904-1913: Steingrímur Thorsteinsson
1913-1928: Geir Zoëga
1928-1929: Þorleifur H. Bjarnason
1929-1956: Pálmi Hannesson
1956-1965: Kristinn Ármannsson
1965-1970: Einar Magnússon
1970-1996: Guðni Guðmundsson
1996-2001: Ragnheiður Torfadóttir
2001- : Yngvi Pétursson
Tenglar
Heimildir
- „Framtaksleysi R-listans vegna framhaldsskóla“. Sótt 19. apríl 2006.
- Heimir Þorleifsson (ritstj.). Saga Reykjavíkurskóla I-IV. Sögusjóður Menntaskólans í Reykjavík, 1975-1984.
- „Tillaga að deiliskipulagi fyrir Menntaskólann í Reykjavík.“. Sótt 10. maí 2006.
Fyrri: Menntaskólinn á Akureyri |
|
Næsti: Verzlunarskóli Íslands |
|||
Fyrri: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti |
|
Næsti: Menntaskólinn í Kópavogi |