G.E. Moore
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki Heimspeki 19. aldar, Heimspeki 20. aldar |
|
---|---|
Nafn: | George Edward Moore |
Fædd/ur: | 4. nóvember 1873 |
Dáin/n: | 24. október 1958 |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk: | Principia Ethica |
Helstu viðfangsefni: | siðfræði, þekkingarfræði, málspeki |
Markverðar hugmyndir: | þverstæða Moores, eðlisvillan |
Áhrifavaldar: | Gottlob Frege, F.H. Bradley, John McTaggart |
Hafði áhrif á: | Bertrand Russell, Ludwig Wittgenstein, J.L. Austin |
George Edward Moore, venjulega þekktur sem G.E. Moore, (4. nóvember 1873 – 24. október 1958) var áhrifamikill enskur heimspekingur sem var menntaður og kenndi síðar við University of Cambridge. Hann var, ásamtBertrand Russell, Ludwig Wittgenstein og (á undan þeim) Gottlob Frege, einn af upphafsmönnum rökgreiningarheimspekinnar.
Moore er þekktastur fyrir vörn sína fyrir heilbrigðri skynsemi, fyrir siðfræði sína, og fyrir þverstæðu sem nefnd er eftir honum. Margir heimspekingar dáðust að honum og hann hafði þónokkur áhrif en er nú á dögum lítt þekktur utan fræðilegrar heimspeki. Ritgerðir Moores eru rómaðar fyrir skýrleika. Meðal frægustu rita hans eru bókin Principia Ethica og ritgerðirnar „The Refutation of Idealism“, „A Defence of Common Sense“ og „A Proof of the External World“.
G.E. Moore lést 24. október 1958. Skáldið Nicholas Moore og tónskáldið Timothy Moore voru synir hans. Moore var mikilvægur meðlimur í leynisamtökunum Cambridge postulunum.
Efnisyfirlit |
[breyta] Heimild
- Greinin „George Edward Moore“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 12. maí 2006.
[breyta] Frekari fróðleikur
- Levy, Paul, Moore: G.E. Moore and the Cambridge Apostles (1979).
[breyta] Tenglar
[breyta] Tengt efni
- Heimspeki heilbrigðrar skynsemi
- Bertrand Russell