Dóná
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dóná (þýska: Donau, slóvakíska: Dunaj, ungverska: Duna, króatíska og serbneska: Dunav, búlgarska: Дунав, úkraínska: Дунай) er næstlengsta fljót Evrópu á eftir Volgu.
Upptök fljótsins eru í Svartaskógi í Suður-Þýskalandi þar sem árnar Brigach og Breg koma saman við Donaueschingen, og rennur í suðaustur eina 2850 km leið að Svartahafi um Dónárósa í Rúmeníu.
Dóná er mikilvæg siglingaleið og myndaði lengst af landamæri Rómaveldis til norðurs og austurs. Áin rennur meðfram eða gegnum tíu ríki: Þýskaland, Austurríki, Slóvakíu, Ungverjaland, Serbíu, Búlgaríu, Rúmeníu, Moldóvu og Úkraínu. Áin rennur í gegnum þessar borgir:
- Ulm - Þýskalandi
- Regensburg - Þýskalandi
- Linz - Austurríki
- Vín - Austurríki
- Bratislava - Slóvakíu
- Búdapest - Ungverjalandi
- Novi Sad - Serbíu
- Belgrad - Serbíu
- Rúse - Búlgaríu
- Braila - Rúmeníu
- Galati - Rúmeníu