Voldemort
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lord Voldemort eða Trevor Delgomé (enska: Tom Marvolo Riddle) eins og hann var í raun skírður er persóna úr bókunum um Harry Potter eftir J.K.Rowling.
Lord Voldemort, persónan sem flestir hræðast svo mikið að þeir þora ekki að nefna nafn hans, er sá sem gerði Harry Potter að því sem hann er.
Hér verður fjallað um lífshlaup þessa myrka og máttuga galdramans.
Athugið! Hér á eftir verður talað um Voldemort sem Tom Riddle, en það er nafnið hans á ensku.
Efnisyfirlit |
[breyta] Fyrstu árin
Galdramaðurinn sem kallaður er Lord Voldemort fæddist árið 1927 í Litlu Hangleton. Móðir hans, sem var norn og samkvæmt Voldemort, afkomandi Salazars Slytherins, varð ástfangin af Tom Riddle, sem var muggi. Tom Riddle bjó á herragarði sem stóð á hæð með útsýni yfir þorpið Litlu Hangleton. Herragarðurinn var einn af stærstu og bestu byggingum á stóru svæði. Þegar móðir Voldemorts sagði föður hans að hún væri norn, yfirgaf hann hana. Móðir hans dó stuttu eftir að hann fæddist, þannig að hún rétt náði að gefa honum nafn, Tom Riddle, eftir föður sínum, og Marvolo, eftir afa sínum. Voldemort var alinn upp á munaðarleysingjaheimili ásamt öðrum muggum.
[breyta] Í Hogwarts 1938–1945
Tom Riddle byrjaði nám sitt í Hogwarts árið 1938 og var settur í Slytherin heimavistina, en hann varð að fara aftur í munaðarleysingjaheimilið sem að hann hataði í skólafríum. Hann lýsti sér sem "fátækum, en snilldarlegum, fátækum, en þó svo hugrakkur, umsjónarmanni og fyrirmyndarnemanda" þótt hann vissi að það var einn kennari sem dýrkaði hann ekki eins mikið og allir aðrir kennarar. Sá kennari var þáverandi umbreytingarkennarinn, Albus Dumbledore.
Tom komst að sögunni um leyniklefann, sem hafði verið byggður af forföður hans, Salazar Slytherin. Leyniklefinn var djúpt í iðrum Hogwartskastala og Slytherin hafði búið þannig um hnútana að aðeins sannur erfingi hans gæti opnað klefann og sleppt lausum hryllingnum sem átti að hreinsa skólann af "öllum sem voru óverðugir þess að galdra". Á þessum var Tom byrjaður að nota nýtt nafn á meðal nánustu vina. Þar sem hann fyrirleit nafnið á muggaföður sínum endurraðaði hann stöfunum í nafninu sínu, Tom Marvolo Riddle. Stafirnir stöfuðu nú I am lord Voldemort (Á íslensku heitir hann Trevor Delgomé til að stafirnir raðist í lord Voldemort).
Voldemort var nafn sem hann vonaði að "galdramenn hvaðanæva að myndu einn daginn hræðast að nefna." Þá væri hann orðinn "mesti galdramaður í heimi!" Það tók Tom fimm ár að finna út allt sem hann gat um Leyniklefann og finna innganginn og skrímslið sem þar bjó. Skrímslið var basilíuslanga og Tom gat stjórnað henni því hann gat eins og Slytherin sjálfur talað slöngutungu. Tom sendi basilíuslönguna inn í skólann og hún slasaði nokkra nemendur og drap stelpu að nafni Vala sem fannst látin á stelpnaklósettinu. 13. júní 1942 bjó Tom þannig um hnútana að Rubeus Hagrid var sakaður um árásirnar og plataði Tom skólameistarann, Armando Dippet, til að trúa að Hagrid og risastór könguló, Aragog, sem Hagrid átti, væru ábyrgir fyrir árásunum. Tom fékk verðlaun fyrir "sérstaka þjónustu við skólann" en fann að Dumbledore var að fylgjast óþægilega náið með honum. Því taldi hann ekki öruggt að opna leyniklefann aftur á meðan hann var í skólanum. Tom varðveitti hluta af sál sinni í dagbók sem að hann vonaði að myndi, dag einn, láta einhvern hjálpa honum við að "ljúka því göfuga verki sem Slytherin hafði byrjað á".
[breyta] Atburðirnir í Litlu Hangelton 1944-1945
Síðasta ár Toms í Hogwarts var 1944 til 45. Hann var umsjónarmaður, nemendaformaður og fékk orðu fyrir galdrahæfileika. Dumbledore sagði seinna að hann hafi sennilega verið snjallasti nemandi sem nokkurn tíma hefði gengið í Hogwarts. Sumarið 1945, eftir að hafa klárað skólann, hefndi hann sín á mugganum, föður sínum. Garðyrkjumaður Riddle-fjölskyldunnar, Frank Bryce, sagði lögreglunni seinna að daginn sem Riddle-fjölskyldan var drepin, hefði hann séð unglingspilt, dökkhærðan og fölan, að sniglast í kring um herragarðinn. Daginn eftir fann þjónustustúlka Riddle eldri og aldraða foreldra hans látin í borðstofunni "ennþá í kvöldverðarklæðnaði". Þau voru ísköld og með hræðslusvip, en engin merki um að hafa slasast líkamlega. Riddlefjölskyldan var grafin í kirkjugarðinum í Litlu Hangelton.
[breyta] 1945-1970
Eftir að hafa myrt fjölskyldu sína fór Tom huldu höfði í nokkur ár. Á þeim tíma ferðaðist hann um heim allan og sökk djúpt í Myrku öflin. Hann átti samneyti við verstu nornir og galdramenn heims og gekkst undir svo margar hættulegar hambreytingar í leit að krafti og ódauðleika. Þegar hann kom aftur og kallaði sig opinberlega Lord Voldemort, gerðu fáir sér grein fyrir því að þetta var myndarlegi og snjalli drengurinn úr Hogwarts.
[breyta] Fyrsta upprisa Myrkravaldsins; 1970-1981
Á áttunda áratugnum byrjaði Voldemort að safna fylgismönnum. Margir sem slógust í hóp með honum gerðu það til að fá sneið af þeim völdum sem honum fylgdu, en fleiri og fleiri gerðu það til að forðast hefndir. Árin sem Voldemort styrkti völd sín einkenndust af mannshvörfum og auknum átökum í galdraheiminum. Fylgismenn hans kölluðu sig Drápara (en:Death Eaters) og hann leit á þá sem sína sönnu fjölskyldu. Drápararnir notuðu frjálslega ófyrirgefanlegu bölvanir þrjár á hvern þann sem storkaði þeim eða neitaði að ganga í hópinn. Margir Dráparar sögðu seinna að á þá hefði verið beitt stýribölvun til að láta þá framkvæma morð og grimmdarverk, þrátt fyrir að mörg drápin hefðu bara verið "til gamans". Drápararnir voru merktir með myrkratákninu; hauskúpu með slöngu sem skagaði út úr munninum eins og tunga, sem var brennt innan á vinstri handlegginn. Þeir sendu merkið úr í loftið, formað úr smaragðsgrænum stjörnum í grænu reykjarskýi, eftir að þeir höfðu drepið, sem orsakaði sundrung og hræðslu hvar sem það sást.
Voldemort hagnaðist á deilum milli galdraheimsins og risanna, og margir risar bættust í hóp fylgismanna hans og báru ábyrgð á fjöldamorðum á muggum. Gagntekinn af fréttum af drápum, mannshvörfum og misþyrmingum í hræðsluþrungnu andrúmsloftinu, heimilaði Bartemius Crouch, yfirmaður víkingasveitar galdramálaráðuneytisins, skyggnum (en:Auror) að nota ófyrirgefanlegu bölvaninnar á móti þeim sem voru grunaðir um stuðning við Voldemort. Hann ráðlagði þeim að aflífa, frekar en handtaka grunaða og þeir voru jafnvel framseldir til vitsuganna, án nokkurra réttarhalda. Á þessum tíma var aðeins einn staður óhultur, Hogwarts, og margir gátu sér til að þrátt fyrir að Myrkrahöfðinginn segði þetta um Dumbledore, "Hann er forsprakki alþýðunnar, mugga og blóðníðinga", þyrði hann ekki að horfast í augu við hann, enda vissi hann að Dumbledore vann nótt sem nýtan dag til að sporna við honum. Dumbledore stofnaði Fönixregluna á þessum tíma. Það var hópur galdramanna og norna sem börðust á móti Drápurum og Voldemort. Þeir voru fáliðaðir miðað við dráparana, og drápararnir myrtu Fönixmeðlimi ásamt allri fjölskyldu þeirra. Lord Voldemort var orðin máttugri en nokkur lifandi galdramaður og hafði nú náð markmiði sínu, að stærsti hluti galdraheimsins gæti ekki nefnt hann á nafn af ótta við hann og sagði í staðinn Þú-veist-hver eða Sá-sem-ekki-má-nefna.
Á hátindi ferilsins, árið 1979, heyrði Myrkrahöfðinginn orðróm um að um hann hefði verið gerður spádómur sem sagði til um þann sem gæti drepið hann. Voldemort heyrði aðeins lítinn part úr spánni, að þessi persóna myndi vera fædd í lok júlí og eiga foreldra sem höfðu lifað af þrjár tilraunir til að drepa hann. Voldemort uppgötvaði að hann yrði að finna og drepa þetta barn. Stuttu seinna fæddist Harry Potter, þann 31. júlí. Foreldrar hans, Lily og James Potter, voru meðlimir í Fönixreglunni og höfðu komist undan Voldemort í þrígang. Voldemort gerði dauðaleit að drengnum, en þau voru vel falinn og honum mistókst. Hvernig sem því líður sveik vinur fjölskyldunnar þau og 31. október, 1981 ruddist Voldemort inn á heimili Potterfjölskyldunnar. Hann drap James og Lily dó einnig þegar hún reyndi að vernda son sinn sem var greinilega næsta fórnarlamb Voldemorts. Þegar Lord Voldemort, magnaðasti galdramaður myrku aflanna sendi drápsbölvunina á Harry Potter, endurkastaðist hún hins vegar á hann sjálfan og gerði hann líkamalausan og kraftlausan. Voldemort flúði.