Tjúktahaf
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tjúktahaf (rússneska: Чукотское море) er hafsvæði í Norður-Íshafi á milli Tjúktaskaga og Alaska. Beringssund tengir það við Beringshaf og Kyrrahaf. Vesturmörk þess eru við Wrangel-eyju og austurmörk við Beaufort-haf.
Tjúktahaf þekur um 595 þúsund ferkílómetra svæði og einungis er hægt að sigla um það í fjóra mánuði á ári. Meira en helmingur hafsins er innan við 50 metrar á dýpt.
Hafið heitir eftir Tjúktum sem búa við strendur þess.
Aðal hafnarbærinn er Uelen með um 800 íbúa.