Norður-Íshaf
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Norður-Íshafið er 14.090.000 km² stórt úthaf við Norðurpólinn. Það er minnst af fimm úthöfum jarðar og það grynnsta; 1.205 metra djúpt að meðaltali og 3.440 metra djúpt þar sem það er dýpst. Stór hluti hafsins er þakinn íshellu sem breytist bæði að stærð og lögun eftir árstíðunum.
Lönd sem liggja að Norður-Íshafinu eru Noregur, Rússland, Bandaríkin, Kanada, Grænland og Ísland.
Fimm úthöf jarðar |
|