Simone de Beauvoir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Simone de Beauvoir (9. janúar 1908 – 14. apríl 1986) var franskur rithöfundur og heimspekingur. Hún skrifaði skáldsögur, rit um heimspeki, stjórnmál og þjóðfélagsmál, ritgerðir, ævisögur og sjálfsævisögu. Þekktust er hún fyrir fræðirit sitt Le Deuxième Sexe (Hitt kynið) frá 1949 en þar er að finna ítarlega athugun og greiningu á kúgun kvenna. Er ritið talið hafa lagt grunninn að samtímafemínisma.