Sanna Jesús kirkjan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipedia. Skoðaðu sýnigreinina og nafnavenjurnar til að bæta hana.
Sanna Jesús kirkjan (真耶穌教會) er sjálfstæð kirkjudeild stofnuð í Peking í Kína árið 1917. Meðlimir kirkjunnar eru um 1,5 milljón í öllum heimsálfum. Kirkjan er kínverskt afbrigði af Hvítasunnuhreyfingunni innan Kristinnar trúar, sem kom fram á byrjun 20. aldar. Árið 1967 var Alþjóðaráð Sönnu Jesús kirkjunnar stofnað í Los Angeles, Bandaríkjunum. Núverandi formaður alþjóðaráðsins er Yung-Ji Lin prédikari.
[breyta] Fimm grunnkenningar
Sanna Jesús kirkjan byggir á fimm grunnkenningum. Þær eru eftirfarandi:
- Heilagur andi og meðtaka hans með því að tala tungum.
- Skírn í náttúrulegu lifandi vatni, svo sem á eða sjó, til að hreinsa burt syndirnar.
- Altarissakramenti, til að minnast Jesú og komast nær Guði.
- Fótaþvottur, til að nálgast Jesú og minna sig á mikilvægi ástarinnar, heilagleikans, fyrirgefningarinnar og þjónustunnar.
- Hvíldardagur, á laugardegi, minnast sköpunar guðs.
- "Jesús Kristur, orðið, sem varð að hold, dó á krossinum fyrir endurlausn syndara, reis upp á þriðja degi og steig upp til himna. Hann er eini lausnari mannkynsins, skapari himnanna og jarðar og hinn eini sanni guð".
- "Friðþæging er gefin af gæsku guðs með trú. Trúendur verða að vera háðir heilögum anda til að eltast eftir heilagleika, til að heiðra guð og til að elska mannkynið".
- "Seinni koma drottins mun verða á efsta degi þegar hann stígur af himninum til að dæma heiminn: þau réttlátu munu öðlast eilíft líf, meðan þau illu munu verða fordæmd að eilífu".