Quidditch
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Quidditch (borið fram "kúidditsj") er tveggja liða galdramannaíþrótt á kústum sem sagt er frá í bókunum um galdrastrákinn Harry Potter.
Í Quidditchliði eru sjö leikmenn; einn gæslumaður, þrír sóknarmenn, tveir varnarmenn og einn leitari. Hlutverk gæslumannsins er að verja mörkin. Sóknarmennirnir reyna að ná tromlunni af andstæðingum og skora með henni mörk. Varnarmennirnir bera stórar kylfur og berja í burtu rotara með þeim. Leitararnir reyna að finna gullnu eldinguna og ná henni. Harry Potter er leitari.
Í Quidditch eru fjórir boltar: ein tromla, tveir rotarar og svo gullna eldingin. Tromlan er notuð til þess að skora mörk með. Rotararnir fljúga um og reyna að rekast á (og jafnvel rota) leikmenn og gullna eldingin flýgur um og henni þarf að ná til að leiknum ljúki. Þá fær það lið sem nær henni 150 stig.
Mörkin eru, eins og í raunverulegum boltaíþróttum, við sitt hvorn enda leikvangsins. Þau eru eins og risastór sápukúlublástursrör, þrjú við hvorn enda. Ef tromlunni er skotið í gegnum hringinn á einhverju markanna fær liðið sem skoraði 10 stig. Á Stóra-Bretlandi eru 13 Quidditchlið, m.a. Falmouth Falcons-Falmouth Fálkarnir, Pride of Portree-Stolt portretanna og Puddlemere United.
Haldin eru heimsmeistaramót í íþróttinni.